|


Bílaumboðið Askja, Mercedes-Benz umboðið á Íslandi, hefur yfir að ráða fullkomnasta hjólastillingartæki sem völ er á til hjólastillinga á stærri bílum. Hjólastillingartækið er gríðarlega nákvæmt og metur stöðu allra hjóla útfrá föstum punktum á grind bílsins.
Við getum hjólastillt allar tegundir stærri bíla. Þegar staða hjólanna hefur verið færð í rétt horf má spara töluvert í eldsneytiskostnaði og að sjálfsögðu skiptir það sköpum þegar horft er til dekkjaslits. Við hjá Bílaumboðinu Öskju ehf. höfum ákveðið að bjóða uppá sérkjör á hjólastillingum til 1. maí.
Tilboðsverðið er eftirfarandi: Millistærð sendibíla: 30.500 kr* Tveggja öxla stærri bílar: 34.000 kr* Þriggja öxla stærri bílar: 38.000 kr* Fjögurra öxla stærri bílar: 46.000 kr*
Verð er fyrir utan vsk.
Tímapantanir hjá atvinnubíladeild Öskju er í síma 590-2170 Einnig er hægt að panta tíma með tölvupósti á netfangið atvinnubilaverkstaedi(hjá)askja.is




|