

Ástríðan er það sem heldur okkur gangandi. Sem þýðir að við erum tilbúnir að fara alla leið til að ná árangri svo eftir sé tekið. Það gerum við með því að velja gaumgæfilega öll okkar hráefni og vanda til vinnslu á þeim. Við hugum að öllum smáatriðum í hönnun á innan- og utanrými og gefum okkur góðan tíma til að prófa og þróa nýjar tæknilausnir. Það gerum við í hátæknivæddri rannsóknar- og þróunarmiðstöð okkar í Affalterbach. En á einu sviði reiðum við okkur ávallt á mannshöndina; þegar við smíðum kjarnann í hverjum einasta Mercedes-AMG; vélina. Þær eru smíðaðar samkvæmt lögmálinu „ein vél fyrir hvern eiganda“. Við notum einungis sérvalda íhluti og sættum okkur einungis við fullkomna samsetningu og hárnákvæmt framleiðslueftirlit frá upphafi til enda framleiðslunnar. Í lok framleiðsluferlisins er settur skjöldur á bílinn með undirskrift tæknimannsins sem er ábyrgur fyrir smíði hans. Skjöldurinn er tákn þess að þú munt njóta einstakrar akstursupplifunar í þínum bíl í hvert sinn sem þú ekur honum og um langan aldur.
