Eftirtektarverð hliðarlína frá hvaða sjónarhorni sem er - allt frá rísandi formlínu framenda bílsins til þokkafulls, bogadregins þaksins og þverskornum afturhleranum. Einkennandi hliðarform A-línunnar eyðir öllum vafa um upprunann. Stutt loftnet sem þolir þvott á bílaþvottastöðvum, er smáatriði sem þó vekur athygli og er ekki síður konfekt fyrir augað en hliðarspeglarnir og hurðahúnarnir sem eru samlitir bílnum. Frá hverju einasta sjónarhorni blasir við töfrandi samspil forma sem á víxl eru ávöl og skörp. Afturhluti A línunnar er líka dæmi um hönnun eins og hún gerist best. Lágstæð afturljós og áberandi afturstuðari gefa bílnum kraftalegra svipmót. Kyrrstæður virðist hann sem límdur við veginn, bíðandi óþreyjufullur og sjálfsöruggur eftir því að leggja af stað í næsta leiðangur.