Nýlega hönnuð 6 gíra beinskipting er frábærlega samhæfð aflúttaki vélarinnar. Gíruppsetning nýju B-línunnar býður upp á stuttar og nákvæmar skiptingar.
B-línan er með ECO start/stop búnaði sem dregur úr eldsneytisnotkun og útblæstri. Búnaðurinn drepur á vélinni þegar bíllinn er kyrrstæður. Að auki stuðlar skjár í mælaborðinu að einkar skilvirkum og eldsneytissparandi akstursstíl með því að gefa til kynna hvenær hagstætt er að skipta um gír.