Það sem einkennir stílrænt útlit CL og endurspeglar hátæknivædda eiginleika hans er t.a.m. ný hönnun á vatnskassahlíf ásamt breytingu á vélarhlífinni, minni bretti og meira áberandi framljós með LED dagljósabúnaði ásamt nýju útliti á stefnuljósum og stöðuljósum. Ríkjandi þáttur í hreinni formlínu CL er ný hliðarlína og sportlegri nálgun í allri hönnun bílsins.
Kraftmiklir hápunktar, þar á meðal tvö bakkljós sem eru innfelld í skottlokið, endurhönnuð afturljós og púströr í nýrri aftursvuntu, eru góð viðbót við samræmt heildaryfirbragð bílsins.