Aflmiklir og sportlegir eiginleikar CLC blasa við um leið og litið er á bílinn. Þetta má strax lesa út úr framvísandi og áberandi örvarlaga framendanum og mikilli sporvídd bílsins. Einkennandi framsvunta og stór Mercedes-Benz stjarna fyrir miðjunni á breiðri vatnskassahlífinni undirstrika að þetta er bíll sem býr yfir miklu afli. Krómlistar á stuðurum, brettum, hurðum og hliðum er staðalbúnaður. Listarnir skapa grípandi anstæður, ekki síst ef bíllinn er í dökkum lit. Stórar álfelgur, (valbúnaður), draga fram sportlega og kraftalega hönnunina. Auðvelt er að gera bílinn enn sportlegri með Sportpakkanum, sem inniheldur sportfjöðrun, ofurnákvæmt stýri og þriggja rima sportstýri klætt leðri.