„Þú stenst ekki freistinguna“ þegar nýr Mercedes-Benz CLS kemur á markað. Ástæðan er ný kynslóð V6 véla, fagurfræðilega mótaðar formlínur bílsins og ljósabúnaður, sem gerir CLS ómótstæðilegri en nokkru sinni áður. Láttu freistast. Upplifðu ástríður og skynsemi í einum og sama bílnum.
Hugmyndin að baki bílnum – ástríður og skynsemi Fagurfræðin í hönnun nýs Mercedes-Benz CLS og sportlegar V6 vélarnar hafa seiðandi áhrif á skynfærin. Þegar við bætast þægindi eins og þau gerast mest, mikill öryggisbúnaður og ábyrgð gagnvart umhverfinu er erfitt að standast freistinguna. Í CLS mætast ástríður og skynsemi á áður óþekktan hátt.