

Það er augljóst við fyrstu sýn að E-línan er hreinræktaður Mercedes-Benz. En um leið státar bíllinn af séreinkennum í hönnun. Sjálfstraustið skín úr hverjum drætti; kraftmikilli og rísandi hliðarlínu frá framhluta að afturhluta bílsins, áberandi örvarmynduðum framhluta, tvöföldum framljósum og mössuðum afturhlutanum.
Sterk, sjónræn nærvera bílsins eykst síðan enn frekar með aukahlutum eins og
LED dagljósabúnaði, LED afturljósum og vatnskassahlíf með krómáferð.

E-Class Estate sameinar glæsileika E-línunnar og mikið rými. Í E-Class Estate er 1950 lítra farangursrými þegar búið er að fella niður sætin. Í boði er breitt úrval samsetninga í áklæðum og skreytingum.
