Þegar ferðast er í GLK er hægt að njóta tónlistarflutnings í hæstu gæðum. Í boði eru þrjár gerðir hágæða hljómflutningstækja. Audio 20 útvarpstækið er með 12,7 cm litaskjá, geislaspilara sem er samhæfður fyrir MP3-spilara. Með tækinu er fáanlegt 6 diska diskaskiptir og Bluetooth® tenging.
Audio 50 APS er valbúnaður. Kerfið inniheldur leiðsögukerfi með nákvæmum kortum í tvívídd, ásamt TMC-umferðarupplýsingakerfi og afþreyingarkerfum eins og DVD-diskadrifi og útvarpi. Með þessu kerfi kemstu á áfangastað á afslappaðan hátt og án þess að taka á þig krók. Kerfið inniheldur hljómtæki með innbyggðu símkerfi og leiðsögukerfi.
Ný aðgerðastýring felur í sér notendavænna viðmót en áður. Hreyfanlegur 17,8 cm skjárinn er í sömu hæð og mælaklasinn. Hann er því ávallt í sjónlínu ökumannsins.
Aðgerðir í COMAND APS-kerfinu eru framkvæmdar með lyklaborði í mælaborðinu, með stjórnrofum í fjölaðgerðastýrinu eða með stjórnrofum framanvert við armhvíluna. Allar lykilaðgerðir eru líka aðgengilegar með raddstýringu. LINGUATRONIC raddstýrikerfið er valbúnaður sem er fáanlegur með Audio 50 APS með 6 diska magasíni og COMAND APS-kerfinu.
Með því er hægt að framkvæma margvíslegar aðgerðir með röddinni einni saman. Með þessu móti getur ökumaðurinn einbeitt sér fullkomlega að umferðinni og notið þess að aka á öruggan og þægilegan hátt.
Innbyggð Bluetooth® tenging gerir ökumanni kleift að nota farsímann sinn án þess að taka hendur af stýri. DVD-spilarinn spilar jafnt geisladiska og MP3-skrár sem og myndbönd og DVD-hljómdiska. Á hörðum diski leiðsögukerfisins er minni fyrir allt að 6 GB af lögum á MP3-formi. Með PCMCIA-raufinni og viðbótartækjum er hægt að stækka minnið nánast óendanlega.