Sérstakur og eftirminnilegur. Útlitshönnunin á GLK talar sínu máli. Hún segir klárt og skýrt að hér er ekki á ferðinni enn einn ósköp venjulegur, fjórhjóladrifinn ferðabíll. Það sem einkennir hönnunina eru ríkjandi formlínur á hurðasvæðinu milli útstæðra hjólaskálanna.
Samþjöppuð og skarphyrnd form, allt frá kraftalegum framenda bílsins til bratts afturendans, gefa GLK endurnærandi yfirbragð sjálfsöryggis og sterka nærveru. Þetta er ekki síst eftirtektarvert fyrir hófsemdina í öllum ytri málum bílsins.