Dísilgerðir GLK standa fullkomlega undir merkjum sem sparneytnir bílar hvort sem er ekið á hraðbrautum, þjóðvegum eða vegleysum.
Dísilgerðirnar í boði eru GLK 200 CDI BlueEFFICIENCY, GLK 220 CDI
BlueEFFICIENCY, GLK 220 CDI 4MATIC BlueEFFICIENCY, GLK 250 CDI 4MATIC BlueEFFICIENCY og 6 strokka vélin í GLK 350 CDI 4MATIC.
Ódýrasta gerð GLK er hinn ofursparneytni GLK 200 CDI BlueEFFICIENCY.
Þessi grunnvél fyrir afturhjóladrifna gerð jeppans skilar 140 hestöflum og mikilli akstursánægju, jafnt á bundnu slitlagi sem torfæruslóðum.
Dísilvélarnar í GLK 220 CDI BlueEFFICIENCY og GLK 220 CDI 4MATIC BlueEFFICIENCY eru báðar einkar sparneytnar og afkastagetan er 167 hestöfl. Það því alltaf til staðar nægt drifafl og viðbótarorka jafnvel í erfiðustu akstursaðstæðum.
GLK 250 CDI 4MATIC BlueEFFICIENCY er með tveimur forþjöppum og hefur hámarkstog upp á 500 Nm sem gerir bílinn ákjósanlegan til að draga aftanívagna. Aflmikla 6 strokka vélin í GLK 350 CDI 4MATIC er aflmesta dísilvélin sem er í boði í GLK-línunni. Með þessari vél hraðar bíllinn sér úr kyrrstöðu í 100 km á klst á 7,3 sekúndum. Vélin er líka eftirtektarverð fyrir einstakan þýðleika í vinnslu og hámarkstog sem næst strax við 1.600 snúninga á mínútu.