AGILITY CONTROL fjöðrunarkerfið er með valkvæðu höggdeyfakerfi. Með þessum búnaði er verulega ánægjulegt að aka GLK. Kerfið lagar stillingar á fjöðrunarkerfinu að vegaðstæðum eins og þær eru hverju sinni með sjálfvirkum hætti. Með AGILITY CONTROL stýrisbúnaði, sem vinnur fullkomlega með fjöðrunarkerfinu, og AGILITY CONTROL gírskiptistýringu, breytist GLK í alhliða ökutæki - ökutæki sem veitir stanslausa akstursánægju, hvort sem ekið er innan borgarinnar á sportlegum nótum eða þegar tekist er á við torfæra slóða.
Ökumönnum, sem aðhyllast enn sportlegri tilburði, stendur til boða Sportpakki að utan eða AMG Sportpakki að utan sem inniheldur sportfjöðrun sem lækkar veghæð bílsins um 20 mm. Með þessum búnaði verður hraður akstur í beygjum að ávanabindandi ánægju.