Mercedes-Benz ökutæki hafa verið þekkt í gegnum tíðina fyrir mikinn öryggisbúnað. Tæknisérfræðingar okkar hafa brotið nýtt blað í sögu öryggisbúnaðar fyrir bílafarþega með margvíslegum nýjum eða endurbættum stoðbúnaði. Meiri áhersla er lögð á það en nokkru sinni áður að draga úr líkum á umferðarslysum og draga úr alvarleika þeirra þegar þeim verður ekki afstýrt.