Mercedes-Benz M-Class: aldrifsbúnaður

Yfirburðir þurfa að byggjast á styrkum stoðum. Samspil sítengda 4MATIC aldrifskerfisins og 4ETS gripstýringarinnar gefur nýju M-línunni hámarks veggrip og eftirtektarverðan drifkraft, jafnvel við mest krefjandi akstursaðstæður. Rafeindastýrð stöðugleikastýring, ESP, tryggir bílnum mikinn stöðugleika í akstri. Í boði er ennfremur torfærupakki, ON&OFFROAD, og hann ásamt virkri hliðarveltuvörn, (ACTIVE CURVE SYSTEM), sér til þess að þú kemst á áfangastað, sama hvernig færðin er. Þú verður fljótur að venjast þeirri tilfinningu í nýja M-jeppanum, að þú ráðir við nánast allar aðstæður sem upp kunna að koma.

M-Class

Hrifning

Ýmsar staðreyndir

  • Hönnun
  • Drifbúnaður og undirvagn
  • Umhverfið
  • Tækniupplýsingar

Bæklingar