Nýja R-línan vekur ekki einungis athygli vegna stærðar sinnar og sérstæðs útlits. Ný, kraftaleg og sportleg hönnun á fram- og afturhluta bílsins sem og breið breið vatnskassahlífin fer ekki heldur fram hjá neinum. Glæsilegar krómskreytingar, sem tilheyra sérstökum krómpakka sem er valbúnaður, draga enn frekar fram laglegar formlínur bílsins. Krómskreytingarnar magna upp þau kraftalegu, sjónrænu áhrif sem bíllinn hefur.
Ný gerð LED dagljósabúnaðar, (valbúnaður), og ný gerð afturljósa með LED tækni og ljósleiðaratækni vekja mikla eftirtekt. Það gera ekki síður glæsilegar, bláskyggðar rúður sem fylgja sportpakkanum.