Meira að segja nálarnar í skjám mælanna virðast jafn snarpar og aksturinn í SL. Þær sperrast upp um leið og bíllinn er ræstur. Þriggja rima stýri klætt nappaleðri er staðalbúnaður. Á stýrinu eru gírskiptiflipar, einn á sitt hvorri hlið stýrisins. Gírskiptifliparnir bjóða upp á sérlega snöggar gírskiptingar, (staðalbúnaður SL 600 og SL 63 AMG og fylgir með í sportpakkanum sem er valbúnaður). Ofurnákvæmt
stýri, (Direct steering), er einnig fáanlegt sem valbúnaður. Til viðbótar við hraðanæma stýringu, (sem er staðalbúnaður), felur það í sér enn afkastameiri stýringu með minni beygjuhring, sem kemur sér vel í bæjarakstri og þegar ekið er á bugðóttum vegum.
En það eru ekki einvörðungu tæknileg fullkomnun SL sem vekur aðdáun. Í farþegarýminu eru sportsæti með sérstakri hliðarstyrkingu. Þau eru klædd samsetningu af leðri og tauáklæði, (staðalbúnaður í SL 300 og SL 350), eða leðri, nappaleðri eða eðalnappaleðri sem lyftir innanrýminu upp á annað plan. Þessu til viðbótar eru sætin rafstillanleg og staðalbúnaður er minnisaðgerð, (valbúnaður í SL 300). Hægt er að geyma kjörstillingar fyrir allt að þrjá í báðum framsætum. Með því að þrýsta á einn rofa færist sætið í kjörstöðu þína. Ennfremur færist stýrishjólið upp þegar sest er inn í bílinn eða stigið út úr honum, sem gerir aðgengið auðveldara. Árekstrarnæmur neyðarútgangur er sambærileg aðgerð. Þessi aðgerð færir stýrið í "ákjósanlegri" stöðu eftir árekstur til þess að auðvelda björgun farþega. Mjóbaksstuðningur er einnig staðalbúnaður í sætunum. Þegar þrýst er á einn hnapp fyllist lofthólf í sætinu sem gefur mjóbakinu viðbótarstuðning. Og það er engin ástæða til að láta leiðindaveður fara í taugarnar á sér því sætin eru líka með upphitun sem staðalbúnaði, (í SL 500, SL 600 og AMG gerðinni). Í SL 600 er ennfremur loftfrískun í sætum.