Við hugsum hlutina allt til enda. Jafnvel á þróunarstigi leggjum við mikla áherslu á að búa til bifreiðar úr umhverfismildum og endurvinnanlegum efnum, t.d. í stuðurum og klæðningu á undirvagni. Þessa hluti er auðveldlega hægt að taka í sundur og endurnýta.
Við notum einnig endurnýtanlegt hráefni svo sem trefjaefni. Kostirnir eru augljósir. Efnin eru umhverfismild og endurvinnanleg.