Hápunktar
Spennandi hönnun, róandi öryggi: Akstursaðstoðarkerfi á pari við lúxusbíla.
Hápunktar
Spennandi hönnun, róandi öryggi: Akstursaðstoðarkerfi á pari við lúxusbíla.


Akstursaðstoðarpakki
Vinna saman fyrir þig. Framúrskarandi akstursaðstoðarpakkinn tengir saman aðstoðar- og öryggiskerfi. Þannig er hægt að greina hættu, gefa viðvaranir og hemla í neyðartilvikum.
Svo þú komist á áfangastað með afslöppuðum og öruggum hætti. Nútímaleg skynjarakerfi
aðstoða þig við að stýra bílnum, skipta um akrein og stjórna aksturshraða – sem er skref í átt að sjálfvirkum akstri. Þegar hætta er á árekstri geta kerfin sjálf gripið inn í og hemlað.

PRE-SAFE®-kerfið
PRE-SAFE®-kerfið nýtir tímann áður en yfirvofandi slys á sér stað. Margar ráðstafanir geta þá dregið úr hugsanlegum áraunum.
Eiginleikinn PRE-SAFE® Sound framkallar suð úr hátölurunum og getur þannig kallað fram varnarviðbrögð: Heyrn þín aftengir sig stutta stund og ver sig þannig fyrir skaðlegum hávaða frá árekstrinum.

MULTIBEAM LED
Sjáðu hættuna í tæka tíð: Valfrjálsu MULTIBEAM LED-aðalljósin eru ekki aðeins glæsilega hönnuð. Þau lýsa akbrautina líka betur upp en önnur hefðbundin aðalljós.
MULTIBEAM LED-aðalljósin gefa þér góða yfirsýn við nærri allar aðstæður. Enda laga þau lýsinguna sjálfkrafa að umhverfi og veðurskilyrðum á augabragði. Þannig gefa þau frá sér breiða og nákvæma lýsingu án þess að blinda aðra ökumenn.

Virk hemlunaraðstoð
Virka hemlunaraðstoðin er stöðugt á verði fyrir þig og getur aðstoðað við að koma í veg fyrir alvarleg slys vegna of lítillar fjarlægðar eða skorts á athygli.
Kerfið varar þá sjónrænt og hljóðrænt við yfirvofandi árekstri. Og ef þú beitir hemlunum ekki af nægum krafti í kjölfarið getur kerfið aukið hemlunaraðstoðina ef á þarf að halda.