Hápunktar
Framsækinn öryggisbúnaður nýja E-Class Cabriolet.
Öryggiskerfi af allra nýjustu gerð gera aksturinn í nýja E-Class Cabriolet ekki aðeins öruggari, heldur einnig afslappaðri.
Hápunktar
Framsækinn öryggisbúnaður nýja E-Class Cabriolet.
Öryggiskerfi af allra nýjustu gerð gera aksturinn í nýja E-Class Cabriolet ekki aðeins öruggari, heldur einnig afslappaðri.
MBUX-viðbótarveruleiki fyrir leiðsögukerfi
Svo þú getir bjargað þér í flóknum aðstæðum í umferðinni tengir MBUX-viðbótarveruleiki fyrir leiðsögukerfi sýndarheiminn og þann raunverulega saman.
Tæknin blandar myndrænum leiðsögu- og umferðarupplýsingum inn í lifandi myndir. Þannig kemstu fljótt, örugglega og afslappað á áfangastað.
Virk hemlunaraðstoð
Virka hemlunaraðstoðin greinir nú einnig ökutæki sem koma úr gagnstæðri átt þegar beygt er og veitir þannig betri vörn gegn árekstrum. Aðeins í boði sem hluti af akstursaðstoðarpakkanum.
DISTRONIC-hraðastillir með fjarlægðarskynjun
DISTRONIC er sjálfvirkur hraðastillir með fjarlægðarskynjun frá Mercedes Benz: Hann heldur sjálfkrafa hæfilegri fjarlægð frá næsta ökutæki á undan og léttir þannig undir með þér á lengri leiðum, til dæmis á hraðbrautum.
Bílastæðaaðstoð með PARKTRONIC
Nýja bílastæðaaðstoðin með PARKTRONIC leggur bílnum ekki bara sjálfkrafa í laust stæði, heldur hjálpar þér meira að segja að finna laust stæði
á hraða allt að 35 km/klst.
MULTIBEAM LED
MULTIBEAM LED-aðalljósin laga sig að akstursskilyrðum hverju sinni. 36 LED-ljós, sem má stjórna hverju fyrir sig, blinda ekki aðra vegfarendur og lýsa upp sérhverja beygju eins og best verður á kosið.
PRE-SAFE®-kerfið
PRE-SAFE®-kerfið nýtir tímann áður en yfirvofandi slys á sér stað. Fjöldi ráðstafana getur dregið úr hugsanlegum áraunum, til dæmis er hægt að strekkja fyrir fram á öryggisbeltum í framsætum með rafstýringu þegar hætta er á ferðum.