BÍLAUMBOÐIÐ ASKJA ehf.
Heimilisfang: Krókhálsi 11, 110 Reykjavík
Símanúmer: +354 590 2100
Neyðarþjónusta: +354 664 2130
Almennar fyrirspurnir: askja(hjá)askja.is
Kennitala: 450704 - 2290
BÍLAUMBOÐIÐ ASKJA
Persónuverndarstefna
Bílaumboðið Askja
Krókhálsi 11,
110 Reykjavík
Ísland
Um persónuverndarstefnuna
Bílaumboðið Askja leggur áherslu á örugga og ábyrga meðferð persónupplýsinga og leggur sérstaka áherslu á að þær séu unnar með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti. Til einföldunar verður hér eftir talað um Bílaumboðið Öskju sem „Askja“ eða „við“.
Í persónuverndarstefnunni eru útskýringar á því hvaða persónuupplýsingum Askja safnar og hvers vegna við söfnum þeim, hve lengi megi ætla að upplýsingarnar verði geymdar, hvert upplýsingunum kunni að vera miðlað og með hvaða hætti sé gætt að öryggi þeirra.
Persónuverndarstefnan tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna.
Askja meðhöndlar og vinnur með persónuupplýsingar um viðskiptavini sína í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og meðferð persónuupplýsingar. Askja leggur áherslu á að hafa persónuverndarstefnu sína gagnorða, skýra og í einföldu máli.
Upplýsingar um ábyrgðaraðila
Ábyrgðaraðili er Bílaumboðið Askja, Krókhálsi 11, 110 Reykjavík, kt. 450704 - 2290. Bílaumboðið Askja er þjónustufyrirtæki s em sérhæfir sig í sölu og þjónustu á bifreiðum frá Mercedes - Benz og Kia. Hjá Öskju er að finna bílaverkstæði, varahlutaþjónustu og sýningarsali fyrir Mercedes - Benz og Kia. Askja rekur einnig bílasölu fyrir atvinnubíla og notaða bíla. Fyrirtækið er vottað samkvæmt BGS staðli.
Frekari upplýsingar um starfsemi Öskju má finna á vefsíðu fyrirtækisins : www.askja.is .
Þegar Askja vinnur persónuupplýsingar þínar samkvæmt þessari persónuverndarstefnu telst Askja vera „ábyrgðaraðili“ persónuupplýsinga þinna samkvæmt lögum Evrópusambandsins og íslenskum lögum um persónuvernd. Heimilisfang okkar er sem hér segir:
Bílaumboðið Askja
Krókhálsi 11,
110 Reykjavík
Ísland
Askja hefur tilnefnt persónuverndarfulltrúa sem þú getur haft samband við með því að senda tölvupóst á gdpr@askja.is eða skriflega á ofangreint heimilisfang.
Tegundir persónuupplýsinga
Þær tegundir persónuupplýsinga sem Askja vinnur með eru einkum:
Tilgangur og heimild fyrir vinnslu persónuupplýsinga
Við söfnum og geymum persónuupplýsingar um viðskiptavini okkar m.a. í eftirfarandi tilgangi:
Hversu lengi geymum við gögnin
Gögn eru geymd eins og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu og skilmála samninga, nema þegar lög og reglur kveða á um annað.
Hvert persónuupplýsingum er miðlað
Askja miðlar persónuupplýsingum ekki til þriðja aðila án þess að samþykki viðskiptavinar fyrir miðluninni liggi fyrir, nema þar sem Öskju er það skylt samkvæmt lögum eða í þeim tilvikum sem talin eru upp í stefnu þessari.Öskju er heimilt að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsl uaðila) sem er þjónustuveitandi, um boðsmaður eða verktaki Öskju , í þeim tilgangi að ljúka við verkefni fyrir viðskiptavininn eða veita viðskiptavini þjónustu eða vöru sem hann hefur beðið um eða samþykkt. Okkur er einnig heimilt að deila upplýsingum með vinnsluaðilum þegar það er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni, t.d. við innhe imtu á vanskilakröfu. Askja deilir einnig upplýsingum, í tölfræðilegum tilgangi, með vinnsluaðilum sem vinna með fyrirtækinu við g æða - og markaðsstarf.Askja afhendir vinnsluaðilunum einungis þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir vinnsluaðila í framangreindum tilgangi og gerir fyrirtækið þá samning þar sem þeir undirgangast skyldu um að halda upplýsingum um viðskiptavini öruggum og nota þær einungis í framangreind um tilgangi.
Söfnun og notkun í markaðstengdum tilgangi
Ef viðskiptavinir samþykkja getum við notað persónuupplýsingarnar þeirra til að gera þeim kunnugt um almenn afsláttarkjör vara og/eða þjónustu frá okkur og sent þeim annað markaðsefni sem við teljum að þeir gætu haft áhuga á. Auk þess getum við sent viðskiptavinum upplýsingar sem eru sérsniðnar að þeim svo sem tilboð sem tengjast bíltegund þeirra og/ eða markaðsefni sem beinist að lýðfræðilegum upplýsingum þeirra. Þá getum við notað upplýsingar til að vinna tölfræðilegar upplýsingar í gæða - og markaðsstarfi. Þessi samskipti geta átt sér stað í gegnum tölvupóst, síma, bréfasendingar eða SMS. Við munum þó leitast við að hafa þessi samskipti hófleg.Innt verður eftir samþykki viðskiptavina með rafrænum hæ tti. Viðskiptavinir munu einnig geta komið samþykki sínu á framfæri með því að senda okkur tölvup óst á gdpr@askja.is eða hringja í okkur í 590-2100.
Viðskiptavinir geta afturkallað samþykki sitt hvenær sem er til að koma í veg fyrir að fá sendar upplýsingar í markaðstengdum tilgangi í framtíðinni. Viðskiptavinir munu getað afturkallað með því að fara á heimasíðu okkar og afskrá sig, smella á tengil í tölvupósti sem þeir hafa fengið frá okkur, senda töl vupóst á gdpr@askja.is eða með því að hringja í 590 - 2100.Ekki er víst að afturköllunin taki tafarlaust gildi en við munum reyna að verða við slíkri beiðni eins fljótt og mögulegt er. Ef viðskiptavinir vilja ekki fá markaðstengt efni frá okkur, getum við samt haldið áfram að hafa samband við þá og sent viðskiptavinum nauðsynlegar upplýsingar í tengslum við þjónustu okkar og/eða lögum samkvæmt. Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar : Stillingar
Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga
Askja mun taka þau skref sem nauðsynleg eru til þess að vernda persónupplýsingar þínar sem við höldum utanum og í því skyni mun Askja nota almennar samþykktir og staðlaðar öryggisráðstafanir.
Réttindi viðskiptavinar
Einstaklingur á rétt á því að fara fram á að fá aðgang að persónuupplýsingum sínum og við ákveðnar aðstæður láta leiðrétta þær, eyða þeim eða takmarka vinnslu þeirra. Einnig á hann rétt á að andmæla vinnslu og fara fram á að gögn hans séu flutt. Þá hefur einstaklingur rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar.
Hvernig er hægt að hafa samband við okkur
Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa Öskju m eð því að senda tölvupóst á netfangið gdpr@askja.is. Hlutverk persónuverndarfulltrúans er að fylgjast með að farið sé eftir ákvæðum laga og reglna um persónuvernd og ákvæðum almennu persónuverndarreglugerðar ESB nr. 2016/679. Sjá einnig upplýsingar í ofangreindum kafla um ábyrgðaraðila.
Hvernig uppfærum við eða breytum persónuverndarstefnunni
Askja breytir þessari persónuverndarstefnu eftir því sem tilefni gefst til og leitast við að halda henni ávallt uppfærðri og í samræmi við þá starfsemi sem fram fer hjá félaginu hverju sinni. Slíkar breytingar kunna t.d. að vera gerðar til að samræma persónuverndarstefnuna við gildandi lög og reglur er varða persónuvernd hverju sinni .
Réttindi viðskiptavina Öskju
Hvernig get ég óskað eftir afriti af eða eyðingu á persónuupplýsingum mínum og hvernig legg ég fram kvörtun?
Samkvæmt löggjöf Evrópusambandsins og íslenskum persónuverndarlögum getur þú óskað eftir afriti af persónuupplýsingum þínum ef þær eru unnar af Öskju. Þú þarft ekki að borga gjald fyrir þessa beiðni nema að hún eigi sér bersýnilega enga stoð eða sé óhófleg. Askja mun gera allt sem á sínu valdi stendur til að bregðast við beiðni þinni innan 30 daga frá móttöku.
Beiðni þín verður að vera skrifleg og innihalda eftirfarandi upplýsingar:
Að auki biðjum við þig um að leggja fram:
Og sýna:
Vinsamlegast sendu beiðni þína til:
Persónuverndarfulltrúi
Bílaumboðið Askja
Krókhálsi 11,
110 Reykjavík
Ísland
Þú hefur einnig rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar. Kvörtun má senda skriflega til:
Persónuvernd
Rauðarárstígur 10
105 Reykjavík