Framtíðin er rafknúin Kynntu þér eVan-úrvalið

Rafmagnaðir atvinnubílar

Þegar bíllinn gengur eingöngu fyrir rafmagni felur það í sér útblásturslausan og nánast hljóðlausan akstur og framúrskarandi snerpu. Allt í allt: Ný aksturstilfinning og akstursmáti sem vísar veginn til framtíðar og minnir á frumkvöðlastarfið fyrir 130 árum síðan.

eVan-sendibílarnir okkar bjóða upp á fjölbreytt notagildi og eru einstaklega öruggir og áreiðanlegir, líkt og gera má ráð fyrir þegar Mercedes-Benz er annars vegar. Kynntu þér rafknúinn akstur og allt sem snýr að drægi, hleðslu, kostnaði, ívilnunum og þjónustu í eVan-úrvalinu okkar.

eSprinter sendibíll

• Allt að 400 km drægni á rafmagni

• Skilvirkur rafmótor með 85 kW (116 hö.) og 295 Nm togi

• Tvær lengdarútfærslur, þrjár rafhlöðustærðir og mikill farmþungi gera eSprinter að vænlegum valkosti fyrir fjölbreytt verk.

• Þrjár rafhlöðuútfærslur eru í boði, 56, 81 og 113 kWh

Vel búinn hvað varðar stafræna tækni og upplýsinga- og afþreyingarkerfi með MBUX


Nánar


eVito sendibíll

• Allt að 264 km drægni

• U.þ.b. 6 klst. hleðslutími úr 0 í 100%

• Skilvirkur rafmótor með að hámarki 85 kW, 116 hö. og allt að 360 Nm tog

• 35 kWh nýtilegt orkumagn rafhlöðu, 41 kWh uppsett stærð rafhlöðu

• Hleðsluafl allt að 7,4 kW

• Framdrif


Nánar


eVito Tourer

• Allt að 264 km drægni

2 - 3 sæta bekkir og allt að 3 sætisraðir

• U.þ.b. 10 klst. hleðslutími úr 0 í 100% í vegghleðslustöð með 11 kW hleðsluafli

• Aðlaðandi hönnun með hönnunareinkennum Mercedes-Benz

• Hæð eVito er undir 2 metrum og passar því vel í bílskúra, bílastæði, bílastæðahús og bílaþvottastöðvar

• Upplýsinga- og samskiptabúnaður með fjölda tengja býður upp á framúrskarandi tengimöguleika og fyrsta flokks afþreyingu


Nánar



eCitan sendibíll

Allt að 294 km drægni

Þökk sé 45 kWh háspennurafhlöðu

DC-hraðhleðsla með allt að 80 kW

Allt að 3,7 m3 farmrými

Ríflegt og traust farmrými – eins og þú átt að venjast


Nánar