Service24h fyrir rekstraraðila | Mercedes-Benz Transporter
Mercedes-Benz Service24h

Að degi eða nóttu: Neyðarþjónusta Mercedes-Benz

Við komum þér aftur af stað á öllum tímum sólarhringsins.

Eitt sem alltaf er með í för í nýja bílnum þínum: Öryggistilfinningin. Ef bíllinn skyldi hins vegar verða óökufær aðstoðar fagleg þjónusta Mercedes-Benz þig við að komast á áfangastað.

Við erum alltaf til staðar fyrir þig.

Neyðarsímanúmerið okkar er 664-2130 og með því getur þú náð í okkur allan sólarhringinn, allt árið um kring. Tæknimaður frá Mercedes-Benz kemur þér til aðstoðar og kemur bílnum í flestum tilvikum aftur í aksturshæft ástand beint á bilunarstað.