Sprinter-grindarbíll | Mercedes-Benz Transporter

Traustur grunnur: Sprinter grindarbílar.

Framsækinn, hagkvæmur og áreiðanlegur.

Framsækinn, hagkvæmur og áreiðanlegur.

Sprinter hentar fullkomlega í þau verkefni sem þú sérð um. Sprinter sem grindarbíll er ótrúlega fjölbreyttur með þremur mismunandi lengdum sem og einföldu og tvöföldu húsi. Fjölmargar útgáfur hans og útbúnaður bjóða upp á hagkvæma bíla í grunnútgáfu sem og bíla sem eru hlaðnir aukabúnaði.

Bílstjórar njóta góðs af hugvitsamlegri hönnun stjórntækja og mæla sem og einingaskiptu geymslukerfi sem má laga sérstaklega að því hvernig bíllinn er notaður hverju sinni, rétt eins og maður getur valið hvaða margmiðlunar- og aðstoðarkerfi eiga að vera til staðar. Samhliða öllu því nýja höfum við haldið eftir því góða. Til dæmis er enn hægt að nota margar þrautreyndar lausnir til að breyta og bæta við uppsetningu bílsins án þess að fara út í stórtækar aðgerðir.

Með krafti frumkvöðulsins og meira en 20 ára reynslu leggur Sprinter nú enn á ný hornstein að framsækinni, hagkvæmri og áreiðanlegri samgöngulausn sem færir fyrirtækið þitt fram eftir vegi.

Hönnun og lausnir.

  1. Hönnun
  2. Tenging
  3. Lausnir fyrir atvinnugreinar
  4. Öryggi
  5. Hagkvæmni
Falleg og hagkvæm hönnun.


Hús nýja Sprinter-grindarbílsins er hápunktur út af fyrir sig með dæmigerðri Mercedes-Benz klæðningu grills og nútímalegum aðalljósum. Ökumannsrýmið var einnig endurhannað og sannar gildi sitt bæði með vandaðri hönnun og framúrskarandi virkni. Til dæmis með hugvitssamlegu og einingaskiptu geymslukerfi og KEYLESS-START.

Í einfalda húsinu er pláss fyrir allt að þrjá einstaklinga, en í tvöfalda húsinu geta lítil teymi með allt að sjö manns keyrt á athafnasvæðið. Aftan við húsið leggur Sprinter-grindarbíllinn í þremur mismunandi lengdum grunninn að ýmis konar yfirbyggingum og viðbótum fyrir verkefnið hverju sinni.

Aðrir góðir kostir eru hið fjölbreytta úrval drifkerfa: Allt eftir notkunarsviði og þeirri akstursgetu sem óskað er eftir má panta Sprinter-grindarbílinn með fram-, aftur- eða fjórhjóladrifi. Skipt er um gíra annaðhvort beinskipt með sex gíra beinskiptingu eða sjálfskipt með 7G-TRONIC PLUS eða með sjálfskiptingunni 9G-TRONIC sem er einstök í sínum flokki1.

Þinn hreyfanleiki 4.0.

Til að gera vinnuna eins hagkvæma og þægilega og mögulegt er má fá mismunandi útvörp, margmiðlunarkerfi og tengjanleikalausnir fyrir Sprinter. Allt eftir þörfum má velja úr festingu fyrir farsíma, útvarpi með Bluetooth®-tengi og handfrjálsum búnaði, margmiðlunarkerfi með snertiskjá í hárri upplausn, hraðvirku leiðsögukerfi með hörðum diski með þrívíddarframsetningu á kortum og samþættingu við snjallsíma. Stjórnunin er eins og hún á að vera, einföld. Til dæmis er hægt að stjórna margmiðlunarkerfunum með snertiskjánum eða með snertihnappinum á aðgerðastýrinu. Gott aðgengi er að öllum stjórn- og mælabúnaði og þægilegt að lesa á hann.
Þar sem stafrænar lausnir tilheyra atvinnulífi nútímans létum við útbúa Sprinter með innbyggðri fjarskiptaeiningu sem leggur grunninn að stöðugri nettengingu bílsins. 

Þar sem er flutningsbeiðni, þar er líka Sprinter.

Sprinter-grindarbíllinn gerir ýmislegt mögulegt. Einfalt eða tvöfalt hús sem og þrjár mismunandi lengdir leggja grunninn að miklu úrvali gerða. Úrvalið eykst enn með fjórum vélargerðum, þremur gerðum drifa sem eru fram-, aftur- og fjórhjóladrif sem og með fjölbreyttum sérútbúnaði, útgáfum undirvagns og lausnum og viðbótum sem eru klæðskerasniðnar að tilteknum atvinnugreinum. Þannig geturðu sett saman bíl með leyfilegri heildarþyngd upp á allt að 5.500 kg. Ef þörf krefur er hægt að hengja 5.250 kg aftan í sé bílnum breytt í dráttarbíl, með leyfilega heildarþyngd upp á 8.750 kg.

Með yfir 600 einingar sérútbúnaðar, þar á meðal sérstakar lausnir fyrir flota og undirvagna, getur Sprinter-grindarbíll lagað sig enn betur að þínum þörfum. Fyrir sérstakar kröfur ákveðinna geira atvinnulífsins standa þér til boða heildarlausnir Mercedes-Benz VanSolution frá verksmiðju og vandaðar lausnir fyrir yfirbyggingar og breytingar innan ramma samstarfsáætlunarinnar „Mercedes-Benz VanPartner”.
 

Greiðir leið þína til árangurs.

Sprinter grindarbíllinn er hannaður fyrir öryggi frá upphafi til enda. Traustur grunnur er yfirbyggingin sem er sérstaklega stöðug sökum byggingar sinnar og samsetningar efna í henni.

Við það bætast hin ótalmörgu aðstoðarkerfi. Því jafnvel reyndustu ökumenn lenda í aðstæðum þar sem stuðningur getur komið sér vel og er tekið fagnandi. Úrvalið nær frá hliðarvindavara sem staðalbúnaðar til virkrar hemlunaraðstoðar og akreinavara – sem bæði eru staðalbúnaður fyrir bíla með leyfilegri heildarþyngd yfir 3.500 kg. Í myrkri eru LED High Performance-aðalljósin í boði sem aukabúnaður, en þau lýsa akbrautina vítt og breytt upp.

Ef illa fer getur loftpúðinn, sem er staðalbúnaður, verndað ökumann í árekstri. Hægt er að fá fimm aukalega loftpúða fyrir ökumann og farþega frammi í.

Hagkvæmur þegar á þarf að halda.

Með Sprinter hefurðu valið bíl sem hefur sannað hagkvæmni sína á áhrifaríkan hátt í meira en 20 ár. Nýi Sprinter grindarbíllinn heldur nú áfram á þessari braut með þrautreyndum gæðum og áreiðanleika. Þú nýtur einnig góðs af hagkvæmni bílsins alveg frá upphafi með áhugaverðum kynningarverðum og fjölmörgum uppsetningarmöguleikum þar sem þú pantar eingöngu það sem þú þarft í raun og veru.

Þar sem við viljum gjarnan bæta það sem gott er höfum við gert dísilvélar okkar enn sparneytnari. Annað sem eykur hagkvæmni í rekstri fyrirtækisins þíns er aukna hleðslugetan sem fæst með valfrjálsa 50 lítra aðaltankinum2 og valfrjálsri afturfjöðrun úr glertrefjastyrktu plasti (GRP).

Þannig sameinar Sprinter grindarbíllinn sparneytni, snjalla eiginleika sem og sérsniðnar lausnir fyrir yfirbyggingar og viðbætur svo úr verður lausn sem er hagkvæm frá öllum hliðum séð.

1

Aðeins með framdrifi.

2

Hægt er að fá 50 lítra aðaltank fyrir Sprinter-grindarbíl með framdrifi.

Lagar sig að nær öllum kröfum.

Eins fjölbreyttur og verkin sem hann vinnur.

Fjölmargar útfærslur og útbúnaðarkostir gera kleift að laga Sprinter-grindarbílinn nákvæmlega að fyrirhuguðum verkefnum. Ef burðargetan skiptir mestu máli er 5500 kg þyngdarútgáfan besti kosturinn. Sem sérútbúinn dráttarbíll er leyfileg heildarþyngd með eftirvagni allt að 8750 kg – til dæmis til að flytja ökutæki. Í einfalda húsinu er pláss fyrir allt að þrjá einstaklinga, en í tvöfalda húsinu geta litlar áhafnir með allt að sjö manns keyrt á vinnustað. Fyrir sérstakar kröfur ákveðinna geira atvinnulífsins er þar að auki hægt að fá fjölmargar viðbætur og sérútbúnað í gæðum sem hafa löngu sannað sig.

Yfirlit yfir fjölbreyttar útfærslur Sprinter-grindarbílsins:

  • Þrjár lengdir: stuttur, millilangur og langur
  • Tvenns konar hús: einfalt hús og tvöfalt hús
  • Fæst með leyfilegri heildarþyngd upp á 3000 kg, 3500 kg, 4100 kg og 5000 kg, ásamt fjölbreyttum útfærslum fyrir meiri eða minni burðargetu með leyfilega heildarþyngd allt að 5500 kg
  • Hámarksburðargeta upp á meira en 3000 kg í 5500 kg þyngdarútgáfunni
  • Allt að 8750 kg leyfileg heildarþyngd fyrir Sprinter-grindarbílinn sem dráttarbíl í tengslum við heildarþyngd með eftirvagni allt að 8,75 tonnum
  • Fæst með fram-, aftur- og fjórhjóladrifi

Auðveldar erfiða vinnu.

Sprinter-grindarbíll

Mercedes PRO: Einfaldar og eykur hraða í þínum rekstri.

Finndu réttu lausnirnar fyrir þinn Sprinter.

Sérsniðnar lausnir fyrir yfirbyggingar.

Svo sendibíllinn uppfylli allar þínar faglegu kröfur.

Séu þarfir þínar dálítið sértækari er mjög líklegt að Mercedes-Benz hafi réttu lausnina fyrir þig. Við aðstoðum þig og bjóðum þér traustar og sérlega hentugar lausnir fyrir yfirbyggingar, beint frá okkur eða frá viðurkenndum samstarfsaðilum okkar. Þannig ertu klár í framkvæmdirnar eða sendingarþjónustuna.

Auðveldar erfiða vinnu.

Stjórnrýminu með framúrskarandi útsýni til allra átta er ætlað að gera hversdag bílstjórans eins þægilegan og mögulegt er. Þannig eru í boði fimm mismunandi gerðir sæta fyrir ökumann þar sem hægt er að uppfylla mismunandi kröfur sem gerðar eru til þæginda.  Nútímalegt mæla- og stjórnkerfi skarar fram úr að því leyti að snjallsímar eru samþættir og valkvæðu margmiðlunarkerfinu er stjórnað með snertiskjá og aðgerðastýri. Einingaskipt geymslukerfið heldur góðu skipulagi í ökumannsrýminu með aðgengilegum hirslum – með hlíf sé þess óskað – og hugvitssamlegum og fjölnota kassa sem gerir það þægilegt að vinna við skriftir í ökutækinu.

Sérsniðnar lausnir fyrir yfirbyggingu.

Svo flutningabíllinn uppfylli allar þínar faglegu kröfur.

Séu þarfir þínar dálítið sértækari getur vel verið að Mercedes-Benz hafi réttu lausnina fyrir þig. Við aðstoðum þig og bjóðum þér traustar og sérlega hentugar lausnir fyrir yfirbygginguna, beint frá okkur eða frá viðurkenndum samstarfsaðilum okkar. Þannig ertu klár í framkvæmdirnar eða sendingarþjónustuna.