Sprinter sendibíll. Sérsniðinn að þínum þörfum.
Nýr Sprinter er kjörinn í hvaða flutninga sem framundan eru.
Framsækinn, hagkvæmur og áreiðanlegur.
Í fyrsta skipti kemur Sprinter með framdrifi. Með framdrifinu býðst aukin hleðslugetu og hleðslukanturinn er lægri í samanburði við bíla með afturdrifi. Bílstjórar njóta góðs af hugvitsamlegri hönnun stjórntækja og mæla sem og einingaskiptu geymslukerfi sem má laga sérstaklega að því hvernig bíllinn er notaður hverju sinni.
Hönnun og lausnir.
Útlit nýja Sprinter-sendibílsins er hápunktur út af fyrir sig: Hönnun hans fylgir nútímalegri hönnunarstefnu Mercedes-Benz með heitið „Sensual Purity“. Ökumannsrýmið var einnig endurhannað og sannar gildi sitt bæði með vandaðri hönnun og framúrskarandi virkni. Til dæmis með hugvitssamlegu og einingaskiptu geymslukerfi og KEYLESS-START.
Þú getur lagað hleðslurýmið að þínum þörfum, til dæmis með festingu fyrir farangur í lofti1, gólfi úr léttu plasti og hjólaskálum sem hlaða má upp á. Valkvæður stuðningur við vörubretti í stigþrepi rennihurðarinnar heldur farminum stöðugum, t.d. þegar mikið er um beygjur á leiðinni, og er farmurinn þannig betur festur.
Aðrir góðir kostir eru hið fjölbreytta úrval drifkerfa: Allt eftir notkunarsviði og þeirri akstursgetu sem óskað er eftir má panta Sprinter-sendibílinn með fram-, aftur- eða fjórhjóladrifi.2 Skipt er um gíra annaðhvort beinskipt með sex gíra beinskiptingu3 eða sjálfskipt með 7G-TRONIC PLUS eða með sjálfskiptingunni 9G-TRONIC sem er einstök í sínum flokki4.
Til að gera vinnuna eins hagkvæma og þægilega og mögulegt er má fá mismunandi útvörp, margmiðlunarkerfi og tengjanleikalausnir fyrir Sprinter. Allt eftir þörfum má velja úr festingu fyrir farsíma, útvarpi með Bluetooth®-tengi og handfrjálsum búnaði, margmiðlunarkerfi með snertiskjá í hárri upplausn, hraðvirku leiðsögukerfi með hörðum diski með þrívíddarframsetningu á kortum og samþættingu við snjallsíma. Stjórnunin er eins og hún á að vera: einföld. Til dæmis er hægt að stjórna margmiðlunarkerfunum með snertiskjánum eða með snertihnappinum á aðgerðastýrinu. Gott aðgengi er að öllum stjórn- og mælabúnaði og þægilegt að lesa á hann.
Þar sem stafrænar lausnir tilheyra atvinnulífi nútímans létum við útbúa Sprinter með innbyggðri fjarskiptaeiningu sem leggur grunninn að stöðugri nettengingu bílsins. Með henni er hægt að nota núverandi Mercedes PRO-þjónustuna og síðari útgáfur hennar. Kostir hennar eru allt frá því að lágmarka niðurtíma með framsýni í viðhaldi bílsins til stafrænnar akstursdagbókar, sem gerir alla pappírsvinnu óþarfa.
Sprinter-sendibíllinn gerir ýmislegt mögulegt: fjórar lengdir, þrjár hæðir á þaki og fjórar gerðir véla leggja grunninn að áhrifamiklu úrvali. Þannig geturðu sett saman bíl með leyfilegri heildarþyngd upp á allt að 5.500 kg. Í lengstu útgáfunni af fjórum og með hæsta þakinu af þökunum þremur er allt að 17 m3 hleðslurými til taks fyrir þig í Sprinter-sendibílnum. Eftir þörfum er hægt að hengja allt að 3.500 kg aftan í.
Með yfir 600 einingar sérútbúnaðar, þar á meðal sérstakar lausnir fyrir flota og undirvagna, getur Sprinter-sendibíllinn lagað sig nákvæmlega að þínum þörfum. Með aukabúnaði fyrir stuðning við vörubretti, hjólaskálar með hlífum og festingu fyrir farangur í lofti er hægt að framkvæma ýmis konar flutning á mun auðveldari hátt. Fyrir sérstakar kröfur ákveðinna geira atvinnulífsins standa þér til boða heildarlausnir Mercedes-Benz VanSolution frá verksmiðju og vandaðar lausnir fyrir yfirbyggingar og breytingar innan ramma samstarfsáætlunarinnar „Mercedes-Benz VanPartner”.
Sprinter er hannaður frá upphafi til enda fyrir öryggi. Traustur grunnur er yfirbyggingin sem er sérstaklega stöðug sökum byggingar sinnar og samsetningar efna í henni.
Við það bætast hin ótalmörgu aðstoðarkerfi. Því jafnvel reyndustu ökumenn lenda í aðstæðum þar sem stuðningur getur komið sér vel og er tekið fagnandi. Úrvalið nær frá hliðarvindshjálp sem staðalbúnaðar til virkrar hemlunaraðstoðar og akreinavara – sem bæði eru staðalbúnaður fyrir bíla með leyfilegri heildarþyngd yfir 3.500 kg. Þrjár myndavélalausnir, frá bakkmyndavél með baksýnisskjá til 360° myndavélar, bæta hina annars góðu yfirsýn sem þegar er til staðar úr bílstjórasætinu. Í myrkri eru LED High Performance-aðalljósin í boði sem aukabúnaður, en þau lýsa akbrautina vítt og breytt upp.
Ef illa fer getur loftpúðinn, sem er staðalbúnaður, verndað ökumann í árekstri. Hægt er að fá fimm aukalega loftpúða fyrir ökumann og farþega frammi í.
Með Sprinter hefurðu valið bíl sem hefur sannað hagkvæmni sína á áhrifaríkan hátt í meira en 20 ár. Nýi Sprinter-sendibíllinn heldur nú áfram á þessari braut með þrautreyndum gæðum og áreiðanleika. Þú nýtur einnig góðs af hagkvæmni bílsins alveg frá upphafi: með áhugaverðum kynningarverðum og fjölmörgum uppsetningarmöguleikum þar sem þú pantar eingöngu það sem þú þarft í raun og veru.
Þar sem við viljum gjarnan bæta það sem gott er höfum við gert dísilvélar okkar enn sparneytnari. Annað sem eykur hagkvæmni í rekstri fyrirtækisins þíns eru þau 50 kíló sem hleðslugetan hefur aukist um5. Með 50 lítra aðaltanki6 og gólfi úr gerviefni7, sem má panta sérstaklega, er hægt að draga enn meira úr þyngd bílsins. Þar að auki státar Sprinter-sendibíllinn af auknu rými5 og 80 mm lægra gólfi hleðslurýmis5. Þannig er hægt að hlaða enn betur inn í hann og auðveldara er að stíga inn.
Þannig sameinar Sprinter-sendibíllinn sparneytni og snjalla eiginleika svo úr verður lausn sem er hagkvæm frá öllum hliðum séð.
Áætlað er að festing fyrir farangur í lofti verði fáanleg frá 1. ársfjórðungi 2019.
Áætlað er að fjórhjóladrifið verði fáanlegt frá 4. ársfjórðungi 2018.
Áætlað er að sex gíra beinskiptingin sem staðalbúnaður með V6-dísilvélinni OM642 verði fáanleg frá 4. ársfjórðungi 2018.
Aðeins með framdrifi.
Ásamt framdrifi, í samanburði við afturdrif.
Hægt er að fá 50 lítra aðaltank fyrir Sprinter-sendibíl með framdrifi.
Plastgólf er í boði sem aukabúnaður fyrir Sprinter-sendibílinn.
Lagar sig að nær öllum kröfum.
Meira rými, meiri hleðslugeta.
Stuðningur við vörubretti í stigþrepi rennihurðar
Hjólaskál sem má hlaða á
LED-ljósaborði í hleðslurými
Plastgólf
Einföld klæðning hleðslurýmis.
Innri klæðning upp undir þak í hleðslurými, má þvo
Innri klæðning upp undir þak í hleðslurými úr við.
Auðveldar erfiða vinnu.

Mercedes PRO: Einfaldar og eykur hraða í þínum rekstri.
Auðveldar erfiða vinnu.
Stjórnrýminu með framúrskarandi útsýni til allra átta er ætlað að gera hversdag bílstjórans eins þægilegan og mögulegt er. Þannig eru í boði fimm mismunandi gerðir sæta fyrir ökumann þar sem hægt er að uppfylla mismunandi kröfur sem gerðar eru til þæginda. Nútímalegt mæla- og stjórnkerfi skarar fram úr að því leyti að snjallsímar eru samþættir og valkvæðu margmiðlunarkerfinu er stjórnað með snertiskjá og aðgerðastýri. Einingaskipt geymslukerfið heldur góðu skipulagi í ökumannsrýminu með aðgengilegum hirslum – með hlíf sé þess óskað – og hugvitssamlegum og fjölnota kassa sem gerir það þægilegt að vinna við skriftir í ökutækinu.
Sérsniðnar lausnir fyrir yfirbyggingar.
Svo sendibíllinn uppfylli allar þínar faglegu kröfur.
Séu þarfir þínar dálítið sértækari er mjög líklegt að Mercedes-Benz hafi réttu lausnina fyrir þig. Við aðstoðum þig og bjóðum þér traustar og sérlega hentugar lausnir fyrir yfirbyggingar, beint frá okkur eða frá viðurkenndum samstarfsaðilum okkar. Þannig ertu klár í framkvæmdirnar eða sendingarþjónustuna.