Fyrir mikil þægindi og stöðugleika í akstri.
Hraðatengd aðstoð við stýringu.
Rafstýrið eykur þægindi hjá ökumanni með hraðatengdri aðstoð við stýringu og aðstoðar við að halda aksturslaginu stöðugu. Við lágan hraða og þegar bíllinn er færður til fær ökumaðurinn hámarksstuðning með léttu stýri. Sé hraðinn aukinn er dregið úr stuðningnum við stýrið þannig að við mikinn hraða leitast bíllinn sem mest eftir að aka beint og við það eykst akstursstöðugleikinn. Leggi ökumaðurinn mikið á stýrið, til dæmis þegar beygt er af, aðstoðar hið svokallaða Active Axle Response við að stilla bílinn aftur af á beinni braut. Frekari þægindi felast í því að stýringin getur dregið úr titringi, til dæmis vegna lélegrar jafnvægisstillingar á framhjólum. Þar sem stýringin krefst aðeins orku þegar lagt er á stýrið leggur hún sitt fram til hagkvæmni í orkunotkun bílsins.