Nýr Mercedes-AMG
CLA 45 4MATIC+
Alrafmagnaður. Væntanlegur.
Yfirbygging Hlutföllin tala sínu máli. Ný AMG hönnun gefur bílnum enn kraftmeira og ákveðnara yfirbragð. Einkennandi AMG hönnunaratriði undirstrika sportlegan karakter og sterka nærveru.
Næsta
Fyrra
    AMG framhluti AMG framhlutinn, með sérhönnuðum frambretti, loftinntökum og upplýstu AMG framgrilli sem er fáanlegt sem aukabúnaður, undirstrikar kraftmikið og sportlegt yfirbragð bílsins.
    AEROKINETICS aftur spoiler Tryggir hámarksveggrip við fjölbreyttar aðstæður, á meðan snjöll loftaflfræði skapar rétta jafnvægið milli afls og stjórnunar í hverri ferð.
    AMG afturhluti AMG afturhlutinn, með stuðara og smáatriðum sem sækja innblástur í diffuser hönnun, undirstrikar sportlegt og kraftmikið yfirbragð bílsins frá öllum sjónarhornum.
    Diffuser í afturstuðara Mótaður og skarpari afturhlutinn heldur áfram kraftmiklu hönnuninni frá framhlutanum. Diffuser setur sterkan svip á útlitið og nákvæm hönnunin fullkomnar sportlega ásýnd bílsins.
    AMG felgur 19 til 20 tommu felgur í möttum svörtum lit gefa bílnum enn kraftmeira yfirbragð og undirstrika tæknilegan, sportlegan AMG karakter.
    Innanrými Innra rými með sterkum AMG karakter.

    AMG Performance stýri

    Close

    AMG Performance stýri

    Sérstakir AMG hnappar gera þér kleift að stjórna helstu akstursstillingum hratt og á einfaldan hátt, beint frá stýrinu.

    AMG Performance sæti

    Close

    AMG Performance sæti

    Sætin eru hönnuð til að veita góðan stuðning og þægindi í hverri beygju, svo aksturinn verði nákvæmari og enn meira spennandi.

    AMG áklæði

    Close

    AMG áklæði

    Gul Race Yellow innskot og kontrastsaumar gefa innra rýminu áberandi og sportlegra yfirbragð með sterkum AMG karakter.

    Glæsileg skjálausn

    Close

    Glæsileg skjálausn

    Stærri skjáir og THERMATIC sjálfvirk loftkæling skapa nútímalegt og fágað yfirbragð í innra rýminu.

    AMG innréttingarefni

    Close

    AMG innréttingarefni

    Svört og silfurlituð AMG innréttingaratriði færa enn meiri AMG karakter inn í farþegarýmið

    Framboð á búnaði, aðgerðum, eiginleikum og þjónustu sem sýnd eru fer eftir viðkomandi bílgerð, valinni útfærslu og markaði.

    AMG afköst
    Rafmögnuð nákvæmni. AMG kraftur. Nýr Mercedes-AMG CLA 45 4MATIC+ færir rafmögnuð afköst á nýtt stig, með meiri krafti og skarpari karakter.
    Næsta
    Fyrra
      AMG vél Fyrirferðarlítil en öflug: þrír axial flux rafmótorar skila allt að 500 kW (680 hö) afli og halda afköstunum stöðugum með einstakri nákvæmni. Með tvo mótora á afturöxli og einn að framan markar nýr Mercedes-AMG CLA 45 4MATIC+ nýjan kafla í alrafmögnuðum AMG afköstum.
      Rafhlaða 94,5 kWh 800V háspennurafhlaðan er sérstaklega þróuð fyrir AMG og hönnuð til að skila stöðugum afköstum. Háþróuð vökvakæling tryggir nákvæma hitastýringu og áreiðanlega aflgjöf.
      AMG aðlögunarfjöðrun Þegar þú reynir á bílinn svarar fjöðrunin af nákvæmni. AMG aðlögunarfjöðrunin tryggir skörp viðbrögð og örugga stjórn í beygjum. Frá þægilegum akstri yfir í hámarksafköst – alltaf með fulla stjórn.
      AMG RIDE CONTROL Með háþróaðri rafrænni stýringu heldur AMG RIDE CONTROL nýjum Mercedes-AMG CLA 45 4MATIC+ stöðugum í kraftmiklum akstri. Fjöðrun og stýring vinna saman af mikilli nákvæmni svo hver beygja verður skarpari, markvissari og undir betri stjórn.
      AMG DYNAMIC PLUS pakki AMG DYNAMIC PLUS pakkinn eykur enn frekar sportlegan karakter Mercedes-AMG CLA 45 4MATIC+ electric með búnaði sem er hannaður fyrir kraftmikinn og nákvæman akstur. Þar á meðal eru rauðar eða svartar bremsudælur, AMG sportdekk, Dynamic Control, Drift Mode, snjöll afkastastýring og Race akstursstilling með AMG Track Pace – allt fyrir enn markvissari AMG akstursupplifun.
      AMG hágæða stálhemlakerfi Þegar hraðinn eykst svarar AMG stálhemlakerfið strax. Stórir, innbyrðis loftkældir bremsudiskar og öflugar bremsudælur að framan tryggja kraftmikla og stöðuga hemlun með þeirri nákvæmni sem veitir ökumanni aukið öryggi og stjórn.
      AMGFORCE S+ AMG færir tilfinninguna og karakterinn úr brunahreyfli inn í nýtt tímabil rafmagnaðra afkasta. Raunverulegt hljóð AMG fjögurra strokka vélar, titringur í framsætum og greinileg tilfinning fyrir gírskiptingum skapa fjölskynja akstursupplifun með ósviknum AMG karakter. Allt þetta er staðalbúnaður.
      Hafa samband Fyrsta skrefið að nýjum alrafmögnuðum Mercedes-AMG CLA 45 4MATIC+ Ertu með spurningar varðandi nýjan alrafmagnaðan Mercedes-AMG CLA 45 4MATIC+, viltu bóka reynsluakstur eða fá upplýsingar um bílinn? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

      Skráning á póstlista

      Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu meðal annars fréttir af nýjum vörum, tilboðum og öðrum upplýsingum. Ef þú kýst að fá þessar upplýsingar ekki sendar, vinsamlegast slepptu því að haka í þennan valmöguleika. Allar upplýsingar eru notaðar í samræmi við persónuverndarstefnu og vafrakökuyfirlýsingu Öskju og er ekki deilt með þriðja aðila.