YfirbyggingBúnaður á ytra byrði GLC.Útlitið á yfirbyggingu nýs GLC er eftirtektarvert með sínum sportlega framenda, sjálfstæðum afturljósaklasa og glæsilegum álfelgum allt frá 45,7 cm (18") til 50,8 cm.
Panorama sólþakHægt er að fá bílinn með sólþaki sem gefur tilfinningu fyrir auknu rými og fallega birtu í innanrýminu, hvort sem glugginn er opinn eða lokaður. Utan frá séð er stór opnanlegur þakglugginn einnig mikilvægur þáttur í útliti bílsins og gefur ytra byrði hans einstaklega létt yfirbragð.
Tvískipt afturljósHönnun á nýju tvískiptu LED-afturljósunum skapa þrívíða áferð og bjóða einnig upp á breiðari afturhlera og stærra op á farangursrými. Um leið gefa mjórri afturljósin bílnum kröftugra yfirbragð, jafnvel þegar hann er ekki á ferð.
AIRMATIC stýring á afturásÁ lágum hraða og meðalhraða stuðlar afturásstýringin að lipurð í akstri, gerir bílinn meðfærilegri í þrengslum og minnkar beygjuhringinn. Á miklum hraða stuðlar hún að stöðugleika í akstri og auknum akstursþægindum. (Hluti af tæknipakkanum sem er valbúnaður.)
Stigbretti úr áli með gúmmírifflumNýstárleg stigbretti úr áli með gúmmírifflum eru aukabúnaður sem undirstrikar kraftmikið útlit GLC. Stigbrettin eru í sömu hæð og hliðarsvunturnar og auðvelda ökumanni og farþegum að stíga inn í bílinn. Stigbrettin eru með sportlega lögun þannig að þau eru mjórri við framdyrnar og breikka svo þegar aftar kemur.
18" til 20" álfelgurNýi GLC-bíllinn lítur vel út frá öllum sjónarhornum en frá hlið gera sportleg hönnunin og jeppaeinkennin hann sérstaklega eftirtektarverðan. Þetta er ekki síst að þakka fjölbreyttu úrvali af stórum álfelgum, frá 45,7 cm (18 tommu) til 50,8 cm (20 tommu).
Sportlegur framhluti með Mercedes-Benz stjörnuFramhluti nýs GLC kallar fram sportlegt yfirbragð bílsins með krómumgjörð um grill og lóðréttum vélarhlífarristum, auk aðalljósa sem undirstrika breiddina. Miðlæg Mercedes-stjarnan setur svo punktinn yfir i-ið í fallegri hönnun framhlutans.
InnanrýmiBúnaður í innanrými GLC.Innanrými GLC setur ný viðmið. Þar tryggir notkun hágæðaefna einstök þægindi, hvort sem horft er til miðlæga skjásins sem hallar að ökumanni, fjölnota sportstýrisins eða fallegrar klæðningarinnar.
Fjölnota sportstýriStýrið er klætt Nappa-leðri, neðri hluti þess er flatur og gripsvæðið vel rifflað, allt þættir sem henta einstaklega vel fyrir sportlegt aksturslag. Mjúkt Nappa-leðrið er upplifun í sjálfu sér. Með stjórnhnöppunum má svo stjórna mikilvægustu aðgerðum bílsins án þess að taka hendurnar af stýrinu.
MBUX margmiðlunarkerfi með miðjuskjáMiðjuskjárinn er snertiskjár sem snýr beint að bílstjóra. Skjárinn er stafræn upplifun milli bílstjóra og bílsins, þar sem ökumaður stjórnar öllum mikilvægum aðgerðum ökutækis. Kerfið stjórnast af innsæi og er eins þægilegt í notkun og hugsast getur.
Sérhönnuð hljóðupplifun: Burmester® 3D surround-hljóðkerfi Upplifðu betri hljómgæði með frábærum Burmester®-hljómi. Gæðahátalarar skila áhrifamiklum surround-hljómi. Hægt er að sérstilla hljóminn fyrir fram- og aftursæti til að gera upplifunina enn betri. Auðþekkjanlegar hlífar Burmester®-hátalaranna falla einnig fullkomlega að fallegu innanrýminu.
Aukabúnaður
ENERGIZING Plus pakkiÞessi pakki býður upp á þægindi fyrir öll skilningarvitin fjölbreyttu úrvali fyrsta flokks búnaðar. Mercedes getur endurnært og dekrað við þig á markvissan hátt með fjölbreyttu úrvali þægindastillinga og fallegs aukabúnaðar á borð við fjölvirk sæti.
Aukabúnaður
FarangursrýmiStaðalbúnaður með nýjum GLC er svonefndur EASY-PACK afturhleri. Farangursrýmið er plássmikið, notadrjúgt og hlaðið fylgihlutum. Nýr GLC er svo enn þægilegri í umgengni með þægindapakka fyrir farangursrými.
TækniBúnaður í nýjum GLC.
Næsta
Fyrra
Head-up displayFramrúðuskjárinn (Head-up Display) er valbúnaður sem sýnir allar mikilvægustu upplýsingar í beinni sjónlínu ökumanns. Hann er því alltaf með óskerta athygli á veginum og umferðinni. Nákvæmni og þægindi. Nú er framrúðuskjárinn enn stærri í nýjum GLC.
Þar sem hjartað slær: MiðjuskjárinnMiðjuskjárinn er snertiskjár sem snýr beint að bílstjóra. Skjárinn er stafræn upplifun milli bílstjóra og bílsins, þar sem ökumaður stjórnar öllum mikilvægum aðgerðum ökutækis. Kerfið stjórnast af innsæi og er eins þægilegt í notkun og hugsast getur.
MBUX-leiðsögn með auknum raunveruleika MBUX-leiðsögn með auknum raunveruleika tengir sýndarheim við raunheim þegar þú þarft að komast leiðar þinnar en umferðin gerir þér erfitt um vik. Tæknin felur í sér grafískar leiðbeiningar og umferðarupplýsingar í rauntíma í myndrænni útfærslu. Þú kemst fljótt og örugglega á leiðarenda, laus við allt stress.
Aukabúnaður
Leiðsögn með leiðarvalskerfi fyrir bíl með tengivagnMBUX-leiðsögukerfið getur tekið tillit til þess ef GLC er ekið með tengivagn þegar leið er reiknuð. Leiðin er jafnvel reiknuð út eftir gerð tengivagnsins – hjólakerra, lítill tengivagn eða stór tengivagn. Þannig reynir kerfið að forðast mikinn halla og krappar beygjur þegar tengivagninn aftan í bílnum er þess eðlis.
Persónulegt notendasniðNotendasniðmát sem þekkir þínar persónulegu stillingar, allt frá ljósastýringu í innra rými í staðsetningu á bílstjórasæti.
Bílastæðapakki með 360° myndavélSérhannað bílastæðakerfi með útsýni til allra átta: Sjálfvirkt bílastæðakerfi með PARKTRONIC og 360° myndavél greinir laus bílastæði og frátekin bílastæði um leið og ekið er fram hjá þeim. Þegar búið er að velja bílastæði er leikur einn að leggja með aðstoð lifandi myndar og hljóðmerkja eða með því að láta sjálfvirku bílastæðahjálpina leggja í stæðið.
Aukabúnaður
Driving Assistance Plus PakkiDriving Assistance Plus pakkinn (akstursaðstoðarpakki) býður upp á hámarksþægindi og öryggi á vegum úti með sjálfvirkum akstri. Með Driving Assistance Plus pakkanum fylgir sjálfvirkt stopp/start-kerfi sem léttir álagi af þér í þungri umferð. Einnig fylgir PRE-SAFE® Impulse Side-hliðarhöggvörn sem veitir viðbótarvörn ef ekið er inn í hlið bílsins.
Aukabúnaður
Virkur fjarlægðarvari DISTRONICVirkur fjarlægðarvari DISTRONIC stýrir ekki einungis hraða bílsins og fjarlægð að næstu ökutækjum. Hann stillir einnig af hraða bílsins í samræmi við leyfilegan hámarkshraða og leiðarval með fyrirhyggjustýrðum hætti. Hann gerir akstur í umferðarhnútum líka streituminni. Þessar snjallstýrðu aðgerðir draga úr steitu í akstri og geta haft jákvæð áhrif á rafakstursdrægið. Einungis í boði með akstursstoðkerfapakka Plus.*
Aukabúnaður
*Fjarlægðarvari og öryggiskerfi eru akstursstoðkerfi sem leysir ökumann ekki undan ábyrgð sinni að stjórna ökutækinu á öruggan hátt öllum stundum. Nánari upplýsingar er að finna í eigendahandbókinni.
KEYLESS-GOKEYLESS-GO, lyklalaus opnun kemur í veg fyrir hina sífelldu leit að bíllyklinum. Lykillinn greinist þegar þú berð hann á þér nálægt bílnum eða í innanrými hans: Hægt er að opna allar dyr og læsa með því einu að snerta hurðarhúnana.
Einnig í boði með KEYLESS-GO þægindapakka.
ENERGIZING Plus pakkiÞessi pakki býður upp á þægindi fyrir öll skilningarvitin fjölbreyttu úrvali fyrsta flokks búnaðar. Mercedes getur endurnært og dekrað við þig á markvissan hátt með fjölbreyttu úrvali þægindastillinga og fallegs aukabúnaðar á borð við fjölvirk sæti.
Aukabúnaður
DIGITAL LIGHTStafrænu ljósin, DIGITAL LIGHT, skapa yfirburða birtuskilyrði og lýsingu sem aðlagar sig öðrum vegfarendum og umhverfinu. Þetta háskerpukerfi virkar eins og ljóskastari og bregst stöðugt við breyttum birtuskilyrðum og lagar sig að breyttum aðstæðum í umferð og veg- eða veðurskilyrðum.
GUARD 360° þjófavörnÍtarleg URBAN GUARD-þjófavörnin vaktar umhverfi bílsins allan hringinn. Þjófavarnarkerfið og afvirkjun lykils í neyðartilvikum gerir þér kleift að bregðast skjótt við. Á vegum úti færðu tilkynningu frá árekstrarskynjara í gegnum forritið. Auk þess eykur aðstoðarþjónusta fyrir stolna bíla (e. Stolen Vehicle Help) líkurnar á að þú endurheimtir bílinn þinn ef honum er stolið.
PRE-SAFE® Impulse SideÞegar GLC skynjar að hliðarárekstur er yfirvofandi grípur PRE-SAFE® Impulse Side, (hluti af akstursstoðkerfapakka Plus), til aðgerða og færir þann farþega sem næstur er hliðarhögginu nær miðju bílsins. Aðgerðin getur dregið úr hættu á meiðslum.
Aukabúnaður í boði með Driving Assistance Plus Pakkanum.
AIRMATICAIRMATIC loftpúðafjöðrunin tryggir afburða fjöðrunareiginleika jafnvel við verstu akstursaðstæður. Veghæð bílsins lagar sig að hraða hans sem getur aukið drægi bílsins þegar ekið er á miklum hraða. Kerfið aðlagar einnig veghæð bílsins að hleðslu hans. Þess utan er hægt að hækka loftfjöðrunina um 15 mm ef þörf krefur og hún lagar sig sjálfkrafa að mismunandi hleðslu bílsins.
Aukabúnaður
Tveggja spennu innbyggt 12/48 volta rafkerfiNýr Mercedes-Benz GLC býður upp á tveggja spennu 12/48 volta rafkerfi í bílum með bensínvél. 48 volta orkustjórnunin er viðbótarbúnaður sem tengist þróun í átt að rafknúnum akstri og eykur sparneytni, bætir eldsneytisnotkun og veitir meiri þægindi.
Aksturstilling fyrir malarveginnÍ gegnum DYNAMIC SELECT getur þú valið aksturstillingu fyrir torfærur. Stillingin lagar veggrip, hemlastýringu og akstursmáta að akstursaðstæðum. Stillingin kveikir einnig á torfærulýsingu ef þinn GLC er útbúinn stafrænni lýsingu, DIGITAL LIGHT.
TorfærustillingMeð einum hnappi er miðlægum skjánum breytt í torfæruskjá. Skjámyndir, stillingar og aðgerðir fyrir akstur í torfærum eru birtar á miðlæga skjánum og á skjá ökumannsins.