Nýr alrafmagnaður CLA Shooting Brake Með allt að 743 km drægni
Yfirbygging Yfirbygging á CLA Shooting Brake Nýr CLA Shooting Brake sameinar rými, sveigjanleika og rafdrifna akstursupplifun á nýjan hátt. Hann hentar þeim sem vilja fjölhæfan bíl sem aðlagast ólíkum þörfum, án þess að gefa eftir í hönnun eða aksturseiginleikum. Skýrar línur og kraftmikið form gefa bílnum áberandi útlit, en rafdrifið gerir hverja ferð enn ánægjulegri.
Næsta
Fyrra
    Straumlínulöguð hönnun CLA Shooting Brake vekur athygli með kraftmiklum framenda, mótuðum línum á vélarhlífinni og einkennandi afturhluta. Innfelldir hurðarhúnar falla að yfirbyggingunni og undirstrika sportlegt útlit.
    Upplýst framhönnun Svipmikill framendi CLA einkennist af nýrri framhlið með upplýstu Mercedes-Benz mynstri og MULTIBEAM LED aðalljósum. Þegar bílnum er læst eða hann opnaður lifnar framhliðin við með kraftmiklu ljósamynstri.
    LED afturljós LED afturljósin og ljósaröndin sem nær yfir allan afturhlutann gefa skýra og nákvæma lýsingu sem eykur sýnileika og öryggi, jafnt að degi sem nóttu.
    Pláss fyrir allt Taktu allt með. Með allt að 455 lítra farangursrými að aftan, rúmgóðu farangursrými að framan, rafdrifnum afturhlera og þakbogum er rafknúinn CLA Shooting Brake tilbúinn í hvað sem er.
    Innanrými Innanrými í CLA Shooting Brake

    Nýtt ökumannsrými með MBUX Superscreen

    Close

    Nýtt ökumannsrými með MBUX Superscreen

    Skjár sem tengir þig við allt. MBUX Superscreen[1] nær yfir allt mælaborðið og sameinar þrjá skjái í eina samfellda upplifun. Nýtt notendaviðmót veitir bæði ökumanni og farþega einfaldan aðgang að stjórntækjum, öppum frá Mercedes-Benz og öðrum þjónustuaðilum[2], á meðan mikilvægustu upplýsingarnar eru ávallt sýnilegar.

    Burmester®3D surround hljóðkerfi með Dolby Atmos®

    Close

    Burmester®3D surround hljóðkerfi með Dolby Atmos®

    Með Burmester® 3D surround hljóðkerfinu, nýtur þú hágæða hljóðupplifunar sem undirstrikar fágað yfirbragð innanrýmisins, meðal annars með krómuðum hátalarahlífum. Kerfið samanstendur af 16 hátölurum og öflugum magnara og býður upp á háþróaða eiginleika á borð við Dolby Atmos® og persónusniðið hljóð, svo þú getir aðlagað upplifunina að þínum óskum.

    Niðurfellanleg aftursæti

    Close

    Niðurfellanleg aftursæti

    Búðu til meira rými þegar þú þarft á því að halda. Aftursætisbekkurinn er skiptanlegur 40:20:40 og veitir aukið pláss fyrir farangur og annað sem þarf að taka með.

    Ný sportsæti með stillanlegum höfuðpúðum

    Close

    Ný sportsæti með stillanlegum höfuðpúðum

    Enn ein leiðin til að finna fullkomna akstursstöðu. Nýju sportsætin[1] eru með samfellda og sportlega hönnun og í fyrsta sinn lárétt stillanlega höfuðpúða sem falla vel að heildarútliti sætanna.

    Stemningslýsing fyrir Panoramic glerþak með SKY CONTROL

    Close

    Stemningslýsing fyrir Panoramic glerþak með SKY CONTROL

    Frá björtu sólarljósi yfir í svalan skugga á augabragði. Panoramic glerþak með SKY CONTROL býður upp á einstaklingsmiðuð þægindi og vörn gegn sólarljósi, á meðan innbyggð stjörnulaga stemningslýsing í þakinu skapar rétta andrúmsloftið.

    Two-tiered centre console with updated trim design

    Smart, elegant, convenient. The redesigned centre console sits high for a sporty feel and features two levels, including a wireless charging[1] spot for your smartphone. The standard anthracite matte trim can be upgraded to wood, aluminium, or natural fibre finishes[1].

    MB.OS Snjallari á nýjan hátt Nýja Mercedes-Benz stýrikerfið, MB.OS, styrkir tenginguna milli þín og rafmagnaða Mercedes-Benz CLA Shooting Brake. Samþætt tæknileg uppbygging, allt frá örgjörva til skýjaþjónustu, tryggir greiðan flutning upplýsinga og heldur bílnum ávallt uppfærðum með þráðlausum hugbúnaðaruppfærslum. Digital Extras-eiginleikarnir og MBUX sýndaraðstoðarmaðurinn læra á þarfir þínar og gera hverja ferð einfaldari og þægilegri.
    Næsta
    Fyrra
      MBUX með nýju og einföldu notendaviðmóti og UNITY 3D vél Nýtt og einfalt notendaviðmót MBUX ásamt fjölbreyttum eiginleikum skapar lifandi upplifun fyrir ökumann og farþega. Unity 3D vélin sér til þess að grafíkin birtist í rauntíma og lifni við á skjánum.
      MBUX Virtual Assistant MBUX Virtual Assistant (sýndaraðstoðarmaðurinn) notar gervigreind til að bregðast á eðlilegan og persónulegan hátt við raddskipunum og spurningum. Eftir því sem hann kynnist þér betur getur hann komið með gagnlegar tillögur, búið til venjur og bent á möguleika áður en þú biður um þá.
      MBUX Surround Navigation Þrívíddarmyndir af umhverfi bílsins ásamt akstursaðstoðarkerfum gera leiðsögn um borgina einfaldari og skýrari en áður.
      Leiðsögn með Google Innbyggð gögn frá Google Maps veita tillögur að áhugaverðum stöðum og mismunandi leiðum. Þannig sameinast umferðarupplýsingar Google í rauntíma og notendavænt viðmót Mercedes-Benz.
      Hafa samband Fyrsta skrefið að nýjum alrafmögnuðum CLA Shooting Brake Ertu með spurningar varðandi nýjan Mercedes-Benz CLA Shooting Brake, viltu bóka reynsluakstur eða fá upplýsingar um bílinn? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

      Skráning á póstlista

      Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu meðal annars fréttir af nýjum vörum, tilboðum og öðrum upplýsingum. Ef þú kýst að fá þessar upplýsingar ekki sendar, vinsamlegast slepptu því að haka í þennan valmöguleika. Allar upplýsingar eru notaðar í samræmi við persónuverndarstefnu og vafrakökuyfirlýsingu Öskju og er ekki deilt með þriðja aðila.