Yfirlit
Útfærslur
Yfirbygging
Innanrými
Tækni
AMG
Hafa samband
    Lavender Silver Metallic
    Black
    Polar White
    Obsidian Black Metallic
    Clear Blue Metallic
    Sodalite Blue Metallic
    High-tech Silver Metallic
    MANUFAKTUR Opalite White Bright
    MANUFAKTUR Alpine Grey
    MANUFAKTUR Patagonia Red
    Tegund Alrafmagnaður GLC
    Verð frá 11.990.000 kr.
    Útfærslur
    LeftRight

    Mercedes-Benz

    Close X
    Næsta
    Fyrra
      Alrafmagnaður GLC 300 4MATIC
      Alrafmagnaður GLC 400 4MATIC

      Mercedes-AMG

      Close X
      Mercedes-AMG CLA 45 S 4MATIC+ Coupé Starting from XXX or XXX per month

      Mercedes-EQ

      Close X
      Strapline Content

      Mercedes-Maybach

      Close X
      Strapline Content
      Yfirbygging Yfirbygging á nýjum alrafmögnuðum GLC Alrafmagnaður GLC vekur strax athygli með einkennandi EQ framhönnun og Mercedes-Benz grillinu, sem fæst með lýsingu í kringum grillið og stjörnuna. Coupé-laga hönnun og 19 til 21 tommu felgur gefa bílnum sportlegt og fágað yfirbragð. Að aftan vekja mótaðir hjólbogar og LED-afturljós með stjörnumynstri athygli.
      LeftRight

      Lines and Styling

      Helstu áherslur á hönnun & búnaði

      Close X
      Næsta
      Fyrra
        Glæsileg framhönnun sem vekur athygli Jeppaleg framhönnun undirstrikar glæsilegt útlit á alrafmögnuðum GLC.
        Jeppalegur hliðarsvipur með coupé laga hönnun Coupé laga hönnun og langt hjólhaf gefa bílnum sportlegan og fágaðan hliðarsvip.
        Breiðir hjólbogar og samfelld hönnun setja sterkan svip á afturhluta bílsins Hjólbogarnir leggja áherslu á breidd bílsins og gefa honum ákveðin svip.
        Upplýstur Mercedes-Benz framendi Nýtt útlit Mercedes-Benz einkennist af grillinu með 942 ljóspunktum sem undirstrika auðþekkjanlega hönnun vörumerkisins. Lýsingin nær yfir grillið og Mercedes-Benz stjörnuna, en dofnar mjúklega til hliðanna. Í myrkri nýtur hönnunin sín sérstaklega vel, með ljósahreyfingum þegar bíllinn er opnaður og honum læst.
        Mercedes-Benz grill með upplýstum ramma Ramminn í kringum grillið lýsist upp sem stöðuljós og gefur bílnum áberandi svip í myrkri. Lýsingin fellur snyrtilega inn í krómklæðninguna og undirstrikar fágaða framhönnun bílsins.
        Stigbretti úr áli með gúmmíborðum Stigbrettið undirstrikar jeppalegt útlit bílsins og auðveldar aðgengi að fram- og aftursætum.
        Panoramic glerþak með SKY CONTROL Bjart og hlýlegt andrúmsloft að innan: SKY CONTROL​ býður upp á níu rafstýrð svæði fyrir sérsniðin þægindi og vernd gegn sólinni - sem skapar einstaka stemningu.
        Umhverfislýsing og upplýst Mercedes-Benz merki Þegar bíllinn er opnaður birtist Mercedes-Benz merkið við framhurðirnar.
        DIGITAL LIGHT snjallljósakerfi DIGITAL LIGHT snjallljósakerfið aðlagar lýsinguna að hverjum akstursaðstæðum. Kerfið nýtir rauntímaupplýsingar frá myndavélum, skynjurum og leiðsögukerfi til að stýra birtunni með mikilli nákvæmni.

        Meðal eiginleika eru Adaptive Highbeam Assist Plus, sem gerir kleift að nota háu ljósin án þess að blinda aðra vegfarendur, ULTRA RANGE háu ljósin sem bæta skyggni, sjálfvirk aðlögun að halla vegar, sérstök torfærulýsing og valkvæð vörpun á táknum, akreinamerkingum og hreyfimyndum á akbrautina.

        Aukabúnaður
        Innanrými Innanrými í nýjum alrafmögnuðum GLC Þegar inn er komið tekur við rúmgott og bjart innanrými þar sem Panoramic glerþak er staðalbúnaður sem gerir rýmið opnara. Vönduð efni og velti- og snúningshnappar á fjölnota sportstýrinu undirstrika vel útfærða hönnun með ökumanninn í forgrunni. MBUX superscreen er staðalbúnaður í GLC, hann sameinar þrjá skjái í eina samfellda heild fyrir ökumann og farþega. Stillanlegt Panoramic glerþak með umhverfislýsingu og Burmester® 4D Surround hljóðkerfi auka enn frekar þægindin og gera hverja ferð að sérstakri upplifun.
        LeftRight

        Lines and Styling

        Helstu áherslur á hönnun & búnaði

        Close X
        Næsta
        Fyrra
          MBUX Hyperscreen 39,1" skjár sem sameinar ökumannsskjá, miðjuskjá og farþegaskjá undir einu glerborði. Skjárinn býður upp á skýra mynd og snjallt, einfalt viðmót.

          Fylgir Power útfærslu.
          MBUX Superscreen MBUX Superscreen sameinar þrjá LCD skjái með skýrum myndgæðum og einfaldri stjórnun. 14" miðjuskjár, 14" farþegaskjár og 10,3" stafrænn ökumannsskjár.
          Upplýstar stjörnur í glerþaki Fjöldi upplýstra stjarna myndar Mercedes-Benz mynstur í glerþakinu. Lýsingin er samstillt umhverfislýsingunni og skapar notalegt andrúmsloft í innanrýminu.

          Fylgir Power útfærslu.
          LED stemningslýsing - 64 litir Hægt er að velja úr 64 litum og 10 litaþemum til að skapa mismunandi stemningu.
          Vegan innréttingarpakki Pakkinn gefur innanrýminu vandað og fágað yfirbragð án notkunar á ekta leðri. Sætaklæðning og fjölnota sportstýri úr ARTICO leðurlíki mynda samræmda heild. Við framleiðslu og vinnslu er jafnframt gætt að því að allt ferlið sé vegan.
          AMG Sports sætispakki Pakkinn byggir á AMG útfærslu og inniheldur svört sport­sæti að framan með samþættu útliti, klædd ARTICO leðurlíki og MICROCUT örtrefjaefni. Saumar eru samræmdir við útfærslu innanrýmisins. MBUX margmiðlunarkerfið, LED stemningslýsingin og hljóðheimurinn eru einnig sérstillt að sportlegu yfirbragði bílsins.
          Drægni & hleðsla Ný viðmið í rafmögnuðum akstri
          Næsta
          Fyrra
            Rafhlaða Rafhlaðan er staðsett í gólfi bílsins, á milli öxlanna. GLC er með nickel-manganese-cobalt rafhlöðu (NMC) , sem er hönnuð með áherslu á mikla drægni og hraða hleðslu.

            800 volta rafkerfið gerir hraðhleðslu mögulega. Við 800 volta hraðhleðslustöð getur GLC við kjöraðstæður, bætt við allt að 300 km drægni á aðeins 10 mínútum.
            Mótorar Rafmótorarnir skila aflinu strax og tryggja mjúkan og skilvirkan akstur. Tveggja þrepa gírkassi á afturöxli hjálpar bílnum að hraða sér jafnt, hvort sem ekið er hægt eða hratt.

            Þegar ekki er þörf á framhjóladrifinu aftengir bíllinn framöxulinn sjálfkrafa til að spara orku og auka drægni. 4MATIC fjórhjóladrifið dreifir aflinu á milli fram- og afturhjóla eftir aðstæðum og tryggir gott grip og stöðugleika, einnig á snjó og hálku.
            Akstursstillingar og orkunýting við hemlun Með DYNAMIC SELECT geturðu valið á milli akstursstillinganna Comfort, Sport, Eco og Individual og þannig aðlagað aksturseiginleika bílsins að þínum óskum. Bílar með 4MATIC fjórhjóladrifi eru einnig með Terrain-stillingu fyrir akstur á malarvegum og ójöfnu undirlagi.

            Hægt er að stilla hversu mikið bíllinn hægir á sér og endurnýtir orku í fjórum þrepum með stýrisflipunum: D, DAuto, D+ og D-. Orkan sem verður til við hemlun er nýtt til að hlaða rafhlöðuna.
            Búnaður Helsti búnaður í nýjum alrafmögnuðum GLC
            LeftRight

            Yfirbygging

            Innanrými

            Helstu áherslur á yfirbyggingu

            Close X
            Næsta
            Fyrra
              MBUX head-up skjár Head-up skjárinn varpar mikilvægum upplýsingum í lit á framrúðuna, þannig að ökumaður getur fylgst með þeim án þess að taka augun af veginum. Leiðsögukerfið nýtir aukinn veruleika til að birta leiðbeiningar með skýrum og myndrænum hætti beint í sjónsviði ökumanns.

              Aukabúnaður
              Digital Extra: Bílastæðapakki með 360° myndavél Sérhannað bílastæðakerfi með útsýni til allra átta: Sjálfvirk bílastæðaaðstoð með PARKTRONIC og 360° myndavél greinir laus bílastæði og frátekin bílastæði um leið og þú nálgast þau. Þegar búið er að velja bílastæði er lítið mál að leggja með aðstoð lifandi myndar og hljóðmerkja eða með því að láta sjálfvirku bílastæðahjálpina leggja í stæðið.
              Digital Extra: MB.DRIVE ASSIST Pakkinn býður upp á akstursaðstoð sem styður ökumann við hálfsjálfvirkan akstur. Auk víðtæks öryggisbúnaðar aðstoðar kerfið meðal annars við stýringu og akreinaskipti. Þannig færðu aukinn stuðning við fjölbreyttar akstursaðstæður og ferðin verður þægilegri.
              Digital Extra: DIGITAL LIGHT snjallljósakerfi DIGITAL LIGHT snjallljósakerfið aðlagar lýsinguna að hverjum akstursaðstæðum. Kerfið nýtir rauntímaupplýsingar frá myndavélum, skynjurum og leiðsögukerfi til að stýra birtunni með mikilli nákvæmni.


              Aukabúnaður
              Digital Extra: Stafrænn bíllykill í snjallsíma Með stafræna bíllyklinum geturðu opnað, ræst og læst Mercedes-Benz bílnum með samhæfu snjalltæki. Þú getur einnig deilt lyklinum með öðrum notendum á einfaldan hátt.

              Helstu áherslur á innanrými

              Close X
              Næsta
              Fyrra
                Myndavél Myndavélin getur tekið myndir og myndskeið af ökumanni og farþega í framsæti. Andlitsgreining auðveldar aðgang að notandasniði, auk þess sem hægt er að taka þátt í myndfundum og fanga augnablik úr ferðalaginu með sjálfumyndum eða stuttum myndskeiðum.
                ENERGIZING AIR CONTROL Kerfið fylgist með loftgæðum í innanrýminu með loftgæða- og fínagnaskynjurum. Tveggja þrepa síukerfi dregur úr fínögnum og flestum öðrum mengunarefnum í andrúmsloftinu. Bíllinn skiptir sjálfkrafa á milli stillinga fyrir fersk loft og loftendurnýtingar eftir loftgæðum.
                AIRMATIC loftfjöðrun með snjallri fjöðrunarstýringu og Digital Extras AIRMATIC loftfjöðrunin eykur akstursþægindi með því að laga sig sjálfkrafa að vegyfirborði og akstursaðstæðum. Kerfið nýtir upplýsingar um ástand vegarins ásamt leiðsögugögnum til að stilla dempun og hæð bílsins fyrirfram eftir aðstæðum.
                Burmester® 3D surround hljóðkerfi Með 15 hátölurum og 670 vatta afli býður hljóðkerfið upp á vandaða 3D Burmester® hljóðupplifun. Hægt er að velja á milli mismunandi hljóðstillinga og kerfið getur sjálfkrafa beint hljóðinu að þeim sætum sem eru í notkun eða sérstaklega að ökumannssætinu. Með Dolby Atmos® verður hljóðið enn ríkulegra og umlykjandi.

                Fylgir Progressive útfærslu
                Þráðlaus hleðsla fyrir tvo snjallsíma að framan Snjallsíminn er lagður í geymsluhólfið þar sem hann helst á sínum stað og hleðst þráðlaust. Kerfið virkar með flestum símum óháð tegund og framleiðanda.
                Vöktun innanrýmis Kerfið fylgist með innanrými bílsins þegar þjófavörnin er virk. Ef hreyfing greinist í bílnum fer í gang bæði ljós- og hljóðviðvörun. Vöktunin virkjast þegar bílnum er læst.
                Rafdrifið hleðslulok Hægt er að opna hleðslulokið rafrænt í gegnum MBUX innan úr bílnum. Þegar hleðslusnúran er tekin úr sambandi lokast lúgan sjálfkrafa og dregur þannig úr líkum á að ekið sé af stað með hana opna. Einnig er hægt að opna og loka henni handvirkt með því að ýta létt á hana.
                Rafstýrt farangurshólf að framan Auðvelt er að opna farangurshólfið að framan með því að snerta Mercedes-Benz merkið á vélarhlífinni. Einnig er hægt að opna það með hnappi í geymsluhólfi ökumannshurðarinnar.
                Reynsluakstur Upplifðu hvernig er að keyra um á nýjum alrafmögnuðum GLC Bókaðu reynsluakstur, við munum hafa samband eins fljótt og auðið er.

                Skráning á póstlista

                Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu meðal annars fréttir af nýjum vörum, tilboðum og öðrum upplýsingum. Ef þú kýst að fá þessar upplýsingar ekki sendar, vinsamlegast slepptu því að haka í þennan valmöguleika. Allar upplýsingar eru notaðar í samræmi við persónuverndarstefnu og vafrakökuyfirlýsingu Öskju og er ekki deilt með þriðja aðila.