Tryggðu þér nýjan alrafmagnaðan EQS á undan öðrum Alrafmagnaður. Í sérflokki. Nýr alrafmagnaður EQS setur ný viðmið í afköstum, hönnun og tækni.
Ytra byrði Djarfur og glæsilegur Glæsilegt ytra byrði nýs EQS einkennist af mótuðum línum á vélarhlífinni, nýjum fram- og afturljósum, upplýstu framgrilli og hinni sígildu uppréttu Mercedes-Benz stjörnu.
Næsta
Fyrra
    Sterk og einstök nærvera Framendi EQS sameinar fágað yfirbragð og kraftmikla hönnun, þar sem upplýst framgrill og hin upprétta Mercedes-Benz stjarna setja sterkan svip á bílinn.
    Sportleg hliðarlína Mótaðar línur á vélarhlífinni skapa áberandi svip og undirstrika um leið kraft og afköst EQS.
    Lýsir upp leiðina Öflugri, bjartari og skilvirkari: nýju framljósin lýsa bæði lengra og yfir stærra svæði með DIGITAL LIGHT og micro-LED tækni.
    Ný hönnun á felgum Kynntu þér uppfært úrval felga með fjórum nýjum hönnunum.
    Endurhannaður afturstuðari Kraftmikið yfirbragð heldur áfram að aftan með nýrri hönnun á afturstuðara.
    Helix ljós Eitt helsta hönnunaratriðið að aftan eru LED-ljós með áberandi þrívíðu Helix-ljósamynstri.
    Panoramic glerþak Panoramic glerþakið sem nær yfir stóran hluta þaksins, eykur birtu og rýmistilfinningu í innanrýminu enn frekar.
    Innanrými Kyrrð í sinni fáguðustu mynd

    Nýtt stýri með yoke-hönnun

    Close

    Nýtt stýri með yoke-hönnun

    Eitt af því sem einkennir nýjan EQS er stýrið með yoke-hönnun, sem ásamt Steer-by-Wire tækni skilar nákvæmri og kraftmikilli stýrisupplifun.

    Nýsköpun sem veitir innblástur og er einföld í notkun

    Close

    Nýsköpun sem veitir innblástur og er einföld í notkun

    Nýtt MB.OS stýrikerfi og uppfært MBUX færa nýjustu tækni beint í hendurnar á þér.

    Næsta kynslóð snjalltækni

    Close

    Næsta kynslóð snjalltækni

    Nýr MBUX Virtual Assistant, sem byggir á gervigreind, býður upp á innsæ og náttúruleg samskipti. Hann greinir tilfinningaleg blæbrigði og á mannlegri samskipti við ökumann en nokkru sinni fyrr.

    Fjölnota myndavél í innanrými

    Close

    Fjölnota myndavél í innanrými

    Fjölnota myndavél í innanrýminu gerir þér kleift að taka þátt í myndfundum úr bílnum. Hún skynjar einnig viðveru í farþegarýminu og getur aðlagað þæginda- og lýsingarstillingar eftir aðstæðum.

    Enn meiri þægindi

    Close

    Enn meiri þægindi

    Upphituð öryggisbelti í framsætum auka þægindin enn frekar og skapa hlýlega og notalega upplifun í hverri ferð.

    Einstakur Nappa leðurpakki

    Close

    Einstakur Nappa leðurpakki

    Samspil hágæða Nappa leðurs og sérstaks lárviðarsaums skapar einstaklega vandað og fágað innanrými.

    Afþreying á fyrsta farrými, hvar sem er

    Close

    Afþreying á fyrsta farrými, hvar sem er

    EQS býður upp á nýjustu kynslóð MBUX High-End Rear Seat Entertainment afþreyingarkerfisins með 33,02 cm (13 tommu) skjám fyrir aftursætafarþega. Þar er hægt að nota öpp, streyma efni og taka þátt í myndsímtölum – fyrir enn meiri þægindi og lúxus í aftursætunum.​

    Búnaður Hver ferð nær nýjum hæðum. Upplifðu EQS með MB.DRIVE pökkum og háþróaðri tækni sem er hönnuð til að færa akstursþægindin á nýtt stig.
    Næsta
    Fyrra
      MB.DRIVE ASSIST Hálfsjálfvirkur akstur er kominn. MB.DRIVE ASSIST pakkinn byggir á háþróuðum öryggiskerfum og aðstoðar meðal annars við stýringu, akreinaskipti og fleira. Með hjálp skynjara, kortagagna og akstursaðstoðar er kerfið hannað til að styðja ökumann á einfaldan og hnökralausan hátt við fjölbreyttar akstursaðstæður.
      Afturásstýring Upplifðu einstaka stjórn á EQS. Afturásstýring auðveldar akstur og snúning í þröngum rýmum en eykur jafnframt stöðugleika og lipurð bílsins á vegum úti.
      Tvíátta hleðsla Nýr EQS getur einnig virkað sem virkur orkugeymslubíll. Með nýstárlegri tvíátta hleðslu tekur EQS ekki aðeins við orku heldur getur hann einnig miðlað henni aftur til heimilisins (V2H) eða út á raforkukerfið (V2G).
      Fágun í hverju smáatriði Sökktu þér í lúxus. Einstök multicontour-sæti og sérhannaðar beltissylgjur skapa fyrsta flokks setustofustemningu, á meðan vandað útfærðar hurðaklæðningar og mjúk ambient-lýsing undirstrika þægindi og fágað yfirbragð sem minnir á einkarými heima fyrir.
      ENERGIZING COMFORT ENERGIZING COMFORT hjálpar þér að slaka á og endurnærast með einni snertingu. Fjölbreyttar stillingar eru hannaðar til að bæta líðan og sameina ýmsa þægindaeiginleika sem hjálpa þér að slaka á og halda áfram ferðinni endurnærð/ur.
      MBUX Head-up Display með auknum veruleika MBUX Head-up Display með auknum veruleika hjálpar þér að sjá næstu skref í akstrinum á skýran hátt. Með AR-tækni birtast mikilvægar akstursupplýsingar beint í sjónlínu ökumanns, þannig að þú getur fylgst með leiðsögn og öðrum upplýsingum án þess að beina athyglinni frá veginum.
      Burmester® 3D surround hljóðkerfi Burmester® 3D-umhverfishljóðkerfið, sem er fáanlegt sem aukabúnaður, umbreytir hlustun í einstaka hljóðupplifun. Fimmtán glæsilega hannaðir hátalarar með einstaklingsstýringu ásamt stafrænt endurbættum magnara skapa nákvæmt og umlykjandi hljóð sem er stillt sérstaklega fyrir hvert sæti.
      Drægni og hleðsla Nýr EQS byggir áfram á þeim háu viðmiðum sem bíllinn hefur sett og býður nú upp á allt að 926 km drægni á einni hleðslu, meðal annars þökk sé rafhlöðu með meiri afkastagetu. Með 800 volta DC-hleðslutækni er jafnframt hægt að bæta við allt að 320 km drægni á aðeins 10 mínútum.
      Hafa samband Fyrsta skrefið
      að nýjum EQS.
      Ertu með spurningar varðandi nýjan
      Mercedes-Benz EQS?
      Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

      Skráning á póstlista

      Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu meðal annars fréttir af nýjum vörum, tilboðum og öðrum upplýsingum. Ef þú kýst að fá þessar upplýsingar ekki sendar, vinsamlegast slepptu því að haka í þennan valmöguleika. Allar upplýsingar eru notaðar í samræmi við persónuverndarstefnu og vafrakökuyfirlýsingu Öskju og er ekki deilt með þriðja aðila.