Nýr GLS Glæsileg hönnun, rúmgott innanrými
og fyrsta flokks þægindi ásamt nýjustu tækni.
Væntanlegur.
Yfirbygging Yfirbygging á nýjum GLS Fágaður, glæsilegur og rúmgóður: Nýr GLS sameinar tímalaust útlit Mercedes-Benz og þau einkenni sem prýða stóran lúxusjeppa.
Næsta
Fyrra
    Upplýst framgrill Áberandi krómlistar og Mercedes-Benz mynstur í krómi skapa fágaðan framenda sem undirstrikar nútímalegan lúxus og einstakt yfirbragð GLS.
    Hönnun að aftan Krómrammaðar 3D Mercedes-Benz stjörnur í afturljósunum undirstrika glæsilega hönnun GLS að aftan.
    Panoramic glerþak Panoramic glerþakið er staðalbúnaður og gerir innanrými GLS enn bjartara og opnara, hvort sem ekið er í sólskini eða undir stjörnubjörtum himni.
    Upprétt stjarna snýr aftur Mercedes-Benz stjarnan á húddinu snýr aftur sem tákn um arfleifð og tímalausan glæsileika. Hún gefur GLS enn fágaðri ásýnd og fellur vel að nýjum, upplýstum framenda.
    Álfelgur Nýr GLS fæst nú með enn fjölbreyttara úrvali álfelga, þar á meðal nýjum 21" og 22" álfelgum.
    DIGITAL LIGHT Ný framljós með stjörnumynstri og DIGITAL LIGHT tækni sameina á glæsilegan hátt hönnun og öryggi.
    Innanrými Innanrýmið í nýjum GLS

    MBUX Superscreen

    Close

    MBUX Superscreen

    MBUX Superscreen er staðalbúnaður og myndar glæsilega skjálausn sem nær frá ökumanni að farþega yfir alla breidd mælaborðsins.

    Sæti með nuddi

    Close

    Sæti með nuddi

    Fjölstillanleg framsætin bjóða upp á endurnærandi nudd með 18 stillanlegum svæðum og gera ferðina enn þægilegri.*

    *Búnaður er mismunandi eftir útfærslum.

    Endurbætt stýri

    Close

    Endurbætt stýri

    Endurbætt fjölnota sport stýri er klætt nappa leðri og búið hefðbundnum stjórnhnöppum.

    Loftræsting með lýsingu

    Close

    Loftræsting með lýsingu

    Ný hönnun og innbyggð lýsing setja fágaðan svip á innanrými GLS.

    Burmester® Premium Surround hljóðkerfi

    Close

    Burmester® 3D surround hljóðkerfi

    15 Burmester® hátalarar skapa einstaklega nákvæma og áhrifamikla hljóðupplifun með tónlist í Dolby Atmos® gæðum.*

    *Búnaður er mismunandi eftir útfærslum.

    MBUX High-End afþreyingarkerfi fyrir aftursæti

    Close

    MBUX High-End afþreyingarkerfi fyrir aftursæti

    Tveir 11,6" MBUX snertiskjáir í annarri sætaröð veita aðgang að afþreyingu, hitastýringu og nuddaðgerðum. Aðlaganleg stemningslýsing og rúmgóður armpúði auka þægindin á ferðinni.

    Aukabúnaður

    7 sæti - staðalbúnaður

    Close

    7 sæti

    Nýr GLS býður upp á rúmgott innanrými og sjö sæti sem staðalbúnað. Þriðja sætaröðin tryggir fyrsta flokks þægindi fyrir alla farþega.

    Tækni Ný viðmið í tækni Tæknin í GLS færir akstursupplifunina á nýtt stig. Nýja Mercedes-Benz stýrikerfið, MB.OS, tengir saman MBUX, MB.DRIVE, stafrænar þjónustur og þann aukabúnað sem þú velur fyrir bílinn. Gervigreind umbreytir samskiptum ökumanns og GLS og gerir bílinn að persónulegum ferðafélaga.
    Næsta
    Fyrra
      Leiðsögn með Google Leiðsögn með Google er samþætt við kerfi bílsins og býður upp á einfalda leiðsögn, umferðarupplýsingar í rauntíma og tillögur að öðrum leiðum. Kerfið veitir einnig upplýsingar um áhugaverða staði, opnunartíma, umsagnir og fleira, líkt og persónulegur leiðsögumaður.
      Digital Extra: MBUX Entertainment Mercedes-Benz Entertainment pakkinn gerir þér kleift að streyma myndböndum, hlusta á tónlist og nota vinsæl smáforrit í gegnum MBUX margmiðlunarkerfið. Nýr GLS verður að afþreyingarmiðstöð á hjólum, þar sem einnig er hægt að spila fjölbreytta leiki á nýja MBUX Superscreen skjánum.
      E-ACTIVE BODY CONTROL GLS sameinar framúrskarandi aksturseiginleika og einstök þægindi með E-ACTIVE BODY CONTROL fjöðrunarkerfi. Kerfið jafnar út hreyfingar yfirbyggingar og högg frá veginum og stýrir hverju hjóli fyrir sig. Nýr GLS getur þannig hallast inn í beygjur og hækkað eða lækkað einstök hjól eftir aðstæðum, fyrir enn meiri þægindi og framúrskarandi akstursupplifun.
      MBUX Virtual Assistant (Sýndaraðstoð) Nýja MBUX sýndaraðstoðin skapar persónulegri tengingu, meðal annars með nýjum myndpersónum. Með stuðningi skapandi gervigreindar getur hún aðstoðað notandann við fjölbreyttar aðstæður á eðlilegri og persónulegri hátt en áður og gerir raunveruleg samtöl möguleg á völdum tungumálum.
      Digital Extra: MB.DRIVE PARKING ASSIST 360 MB.DRIVE PARKING ASSIST 360 með 360° myndavél auðveldar bílastæðalögn og akstur í þröngum aðstæðum, auk þess sem kerfið veitir góða yfirsýn yfir umhverfi GLS. Virka bílastæðaaðstoðin greinir hentug stæði með hliðsjón af stærð bílsins og lausu rými og aðstoðar við að leggja samsíða, þvert og á ská.
      GUARD 360° þjófavörn með stafrænum viðbótum GUARD 360° þjófavörnin veitir víðtækt eftirlit með bílnum. Kerfið inniheldur þjófavörn sem skynjar ef reynt er að færa bílinn án heimildar, auk skynjara sem nema hreyfingu í innanrýminu og virkja ljós- og hljóðviðvaranir. Tilkynningar um mögulegan þjófnað eða árekstur berast í snjallsímaforritið svo þú sért ávallt upplýst/ur.
      Hafa samband Fyrsta skrefið að nýjum GLS Ertu með spurningar varðandi nýjan Mercedes-Benz GLS, viltu bóka reynsluakstur eða fá upplýsingar um bílinn? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

      Skráning á póstlista

      Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu meðal annars fréttir af nýjum vörum, tilboðum og öðrum upplýsingum. Ef þú kýst að fá þessar upplýsingar ekki sendar, vinsamlegast slepptu því að haka í þennan valmöguleika. Allar upplýsingar eru notaðar í samræmi við persónuverndarstefnu og vafrakökuyfirlýsingu Öskju og er ekki deilt með þriðja aðila.