Nýr
Mercedes-AMG GT SUV.
Yfirbygging Hannaður til að vekja athygli. Hvert smáatriði í nýjum Mercedes-AMG GT SUV hefur verið hannað af mikilli nákvæmni. Kraftmikið yfirbragð og sportlegur karakter skapa sterka heild, þar sem línurnar leiða augað frá áberandi framenda að svipmiklum afturhluta. Útkoman er hönnun sem er bæði kraftmikil og auðþekkjanleg.
Næsta
Fyrra
    Kraftmikið yfirbragð Sportlegur karakter og einkennandi AMG hönnun að framan og aftan mynda kraftmikla heild sem gerir GT SUV samstundis auðþekkjanlegan sem AMG.
    Upplýst hönnun á framenda Upplýst AMG grill og Mercedes stjarnan gefa framendanum sterkan og einkennandi svip sem fer ekki fram hjá neinum.
    Upplýst hönnun á afturhluta Áberandi ljósarönd og svipmikil afturljós gefa GT SUV sterkan og eftirminnilegan svip að aftan.
    Felgur allt að 23" Felgur allt að 23" undirstrika kraftmikið yfirbragð GT SUV og gefa bílnum sterkan svip, hvort sem hann stendur kyrr eða er á ferð.
    AEROKINETICS hönnunaratriði AEROKINETICS hönnunaratriði, eins og AEROKINETICS þakspoiler, gera þér kleift að aðlaga bílinn að ólíkum akstursaðstæðum, hvort sem markmiðið er nákvæmari akstur við krefjandi aðstæður eða aukin drægni og stöðugleiki.
    MANUFAKTUR Portfolio Með MANUFAKTUR færðu enn fleiri möguleika til að setja persónulegan svip á GT SUV, allt frá sérstökum lakklitum á yfirbyggingu til sérlakkaðra felga.
    AMG DYNAMIC PLUS pakki AMG DYNAMIC PLUS pakkinn sameinar háþróaðan búnað sem eykur akstursgetu og sportlega eiginleika bílsins enn frekar. AMG ACTIVE RIDE CONTROL+ fjöðrunarkerfið dregur úr hliðarhalla og hreyfingum yfirbyggingar, á meðan AMG RACE ENGINEER Control Unit, Race akstursstilling og AMG TRACK PACE veita ökumanni enn meiri stjórn við krefjandi akstur.

    Áberandi bremsuklossar í lit með AMG merkingu undirstrika jafnframt afkastagetu og vandaða útfærslu bremsukerfisins.
    AMG Driver's pakki AMG Driver's pakkinn eykur hámarkshraðann í allt að 270 km/klst. og undirstrikar sportlega eiginleika bílsins enn frekar. Í pakkanum er einnig AMG háafkasta keramikbremsukerfi ásamt kælingu við hjólaskálar sem stuðlar að öflugri hemlun og skilvirkri kælingu við krefjandi akstur.
    Innanrými Þegar þú sest inn viltu helst ekki fara út aftur.

    Ökumannsmiðað innanrými

    Close

    Ökumannsmiðað innanrými

    Hönnunin tekur mið af ökumanninum og gerir allar helstu stjórnanir aðgengilegar og þægilegar í notkun. Fjölbreyttir sérsniðsmöguleikar gera þér kleift að skapa akstursupplifun sem hentar þér.

    AMG Performance stýri

    Close

    AMG Performance stýri

    Breyttu karakter GT SUV á augabragði með sportlegum stillingum sem eru alltaf innan seilingar.

    AMG Performance sæti

    Close

    AMG Performance sæti

    AMG Performance sæti veita framúrskarandi stuðning, þægindi og stjórn, jafnvel þegar ekið er af meiri krafti.

    Aftursæti

    Close

    Aftursæti

    Rúmgóð og þægileg aftursæti bjóða upp á rafstillingar og mjúka setu sem gera ferðina sérstaklega þægilega, jafnvel á lengri leiðum.

    SKY CONTROL panorama þak með upplýstu mynstri

    Close

    SKY CONTROL panorama þak með upplýstu mynstri

    Stórt panoramaþak hleypir birtu inn í innanrýmið og eykur rýmistilfinninguna. Þegar skyggja tekur má breyta þakinu í glitrandi ljósaflöt með einstöku ljósmynstri sem skapar sérstaka stemningu í bílnum.

    Burmester® High-End 4D surround hljóðkerfi

    Close

    Burmester® High-End 4D hljóðkerfi

    Burmester® 4D High-End hljóðkerfið skilar kraftmikilli og umlykjandi hljóðupplifun sem passar fullkomlega við sportlegan karakter GT SUV.

    Þægindi í aftursætum

    Close

    Þægindi í aftursætum

    Rúmgott fótarými og rafstillanleg sætisbök skapa fyrsta flokks þægindi í aftursætum. Þannig verður ferðin afslöppuð og þægileg, jafnvel á lengri leiðum.

    Tækni Ný viðmið fyrir akstursupplifun í SUV flokki. Nýr Mercedes-AMG GT SUV sameinar háþróaða tækni, mikið afl, hraðhleðslu og þróað fjöðrunarkerfi. Þrír rafmótorar með axial flux tækni og afkastamikil rafhlaða skila kraftmikilli akstursupplifun og miklum afköstum. Með allt að 860 kW afli og um 700 km drægni sameinar GT SUV sportlega eiginleika og notagildi fyrir daglegan akstur.
    Næsta
    Fyrra
      Aflrás Næsta kynslóð rafmótora með axial flux tækni skilar afköstum í sannkölluðum AMG anda og markar nýtt skref í þróun rafknúinna afkastabíla. Nýr Mercedes AMG GT SUV er knúinn þremur aflmiklum rafmótorum, einum að framan og tveimur að aftan, sem tryggja stöðugt afl og kraftmikla akstursupplifun.
      Axial Flux rafmótorar Rafmótorar með axial flux tækni eru mun fyrirferðarminni, léttari og öflugri en hefðbundnir rafmótorar. Þeir eru um tveimur þriðju léttari og þurfa aðeins um þriðjung þess rýmis sem hefðbundnir rafmótorar þurfa. Fyrir vikið er aflþéttleikinn um þrefalt meiri.
      AMG High Performance rafhlaða Háspennu AMG High Performance rafhlaðan er búin sívölum rafhlöðusellum með beinni kælingu og er hönnuð til að skila miklu og stöðugu afli yfir lengri tíma. Þannig stuðlar hún að aflmiklum akstri og stöðugum afköstum, bæði á veginum og við hraðhleðslu.
      AMG RIDE CONTROL+ AMG RIDE CONTROL+ fjöðrunarkerfið sameinar sportlega eiginleika og mikil þægindi. Fjölhólfa loftpúðafjöðrun býður upp á fjölbreyttar stillingar, allt frá þægilegum akstri yfir í sportlegri aksturseiginleika, og aðlagar sig jafnframt að álagi hverju sinni. Þannig skilar kerfið öflugri og öruggri akstursupplifun við fjölbreyttar aðstæður.
      AMG ACTIVE RIDE CONTROL+ AMG ACTIVE RIDE CONTROL+ notar háþróað vökvakerfi til að draga virkt úr hliðarhalla og hreyfingum yfirbyggingar. Fjöðrun og stýring aðlagast nákvæmlega að akstursaðstæðum og yfirborði vegarins og skila kraftmikilli AMG akstursupplifun án þess að draga úr þægindum.
      Boost Mode Hljóð. Kraftur. Nærvera. Hröðun sem þú finnur fyrir. Boost Mode eykur kraftinn þegar á þarf að halda og gerir framúrakstur að enn kraftmeiri akstursupplifun.
      AMGFORCE Sports+ Arfleifð AMG í rafmagnaðri mynd. AMGFORCE Sports+ akstursstillingin endurskapar tilfinninguna sem fylgir akstri á aflmiklum sportbíl, með sannfærandi vélarhljóði og viðbrögðum við gírskiptingar. Útkoman er akstursupplifun sem færir þig enn nær hinum sanna AMG karakter.
      AMG RACE ENGINEER Nýr AMG RACE ENGINEER samhæfir hugbúnað og vélbúnað aflrásar og aksturskerfa með tveimur lykilþáttum. AMG RACE ENGINEER Core afkastaflísinn hámarkar nýtingu drifbúnaðarins, á meðan miðlæg AMG RACE ENGINEER stýrieining gerir ökumanni kleift að sérsníða aksturseiginleika bílsins í ríkum mæli. Hún stýrir meðal annars viðbrögðum bílsins, spólvörn og hegðun í beygjum.
      AMG TRACK PACE AMG TRACK PACE breytir bílnum í þinn eigin stafræna keppnisverkfræðing. Kerfið skráir meðal annars hringtíma, millitíma, hröðun og valin rauntímagögn úr akstri svo þú getir greint aksturinn og bætt aksturstæknina.

      AMG TRACK PACE er eingöngu ætlað til notkunar á lokuðum kappakstursbrautum.
      Drift Mode Hannað fyrir þá sem vilja meira en beina línu. Með nákvæmri stjórn og krafti til afturhjólanna gerir Drift Mode hverja beygju að kraftmikilli upplifun. Finndu frelsið.
      Predictive Performance Manager (PPM) Til að ná sem bestum hringtímum skiptir máli að nýta aflið á réttan hátt yfir allan aksturinn, ekki bara kalla stöðugt eftir hámarksafli. Predictive Performance Manager (PPM) stýrir aflgjöfinni með það að markmiði að hámarka frammistöðu á braut. Kerfið aðlagar aflið eftir því hvort Endurance eða Hotlap stilling er valin.
      AMG Launch Control AMG Launch Control undirbýr bílinn fyrir kraftmikla ræsingu. Sérstakt hljóð byggir upp spennuna á meðan öryggisbelti herðast sjálfkrafa til að veita aukinn stuðning. Stemnings lýsingin skiptir yfir í sérstaka stillingu og bíllinn byrjar að titra greinilega. Allt er tilbúið fyrir ræsingu.
      Fjórhjólastýring Fjórhjólastýring eykur lipurð bílsins á minni hraða og bætir stöðugleika á meiri hraða. Þannig verða beygjur, akreinaskipti og bílastæðaaðgerðir nákvæmari, öruggari og auðveldari í framkvæmd.
      Farangursrými Rúmgott farangursrými að framan og aftan gefur þér meira pláss fyrir það sem þarf að taka með í ferðina, án þess að það komi niður á hönnun eða aksturseiginleikum bílsins.
      Aukin þægindi í daglegri notkun Snjallar og hagnýtar lausnir, eins og fjölbreytt geymslurými, tvíhliða motta í farangursrými og öryggisnet, gera daglegan akstur og ferðalög enn einfaldari og þægilegri.
      Hleðsluhraði Með allt að 710 kW hraðhleðslu er hægt að bæta við um 400 km drægni á aðeins 10 mínútum. Það samsvarar rúmlega 400 km vegalengd, til dæmis frá Mílanó til Cannes, á innan við 10 mínútum. Hleðslan er svo hröð að þú nærð varla að klára kaffibollann á meðan.
      Kæling Bein kæling rafhlöðusellana tryggir skilvirka hitaleiðni og jafna kælingu allra frumna með sérstöku lagnakerfi. Háþróuð hitastýring rafhlöðusella og rafleiðslna skiptir einnig lykilmáli við hleðslu og hjálpar til við að skapa kjöraðstæður fyrir mikinn hleðsluhraða og stöðug afköst.
      AMG hleðslustillingar Veldu þá hleðslustillingu sem hentar þér hverju sinni. Með stillingunum Fast, Balanced, Efficient & Silent og Sprint Ready geturðu aðlagað hleðsluna að tíma, aðstæðum og þínum þörfum.
      Orkuendurheimt Bein kæling hverrar rafhlöðueiningar stuðlar að miklum og stöðugum afköstum ásamt langri endingu rafhlöðunnar. Þannig heldur rafhlaðan afkastagetu sinni jafnvel við kraftmikinn akstur þar sem hröðun og hemlun skiptast ört á. Við hemlun er orka endurheimt og nýtt til að hlaða rafhlöðuna.
      Drægni Þrátt fyrir mikla áherslu á afköst er nýr Mercedes AMG GT SUV jafnframt mjög skilvirkur. Með um 700 km drægni hentar hann vel til daglegrar notkunar og sameinar kraftmikla aksturseiginleika og gott notagildi.
      Hafa samband Fyrsta skrefið
      að nýjum
      Mercedes-AMG GT SUV.
      Ertu með spurningar um nýjan Mercedes-AMG GT SUV eða viltu fá upplýsingar um bílinn? Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband.

      Skráning á póstlista

      Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu meðal annars fréttir af nýjum vörum, tilboðum og öðrum upplýsingum. Ef þú kýst að fá þessar upplýsingar ekki sendar, vinsamlegast slepptu því að haka í þennan valmöguleika. Allar upplýsingar eru notaðar í samræmi við persónuverndarstefnu og vafrakökuyfirlýsingu Öskju og er ekki deilt með þriðja aðila.